135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

grunnskólar.

285. mál
[17:19]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil fagna sérstaklega samþykkt þessarar greinar, bæði breytingartillögunni sem kom frá menntamálanefnd við hana og núna greininni í heild sinni, sem styrkir stöðu fatlaðra barna, barna sem hafa sérþarfir til að fá þörfum sínum sinnt innan veggja skólans eftir því sem mögulega kostur er. Það er mikið framfaraskref sem verið er að stíga með þessari lagagrein.