135. löggjafarþing — 109. fundur, 27. maí 2008.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Arnbjörgu Sveinsdóttur, um að Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi, tekur sæti hennar á Alþingi í dag. Rósa Guðbjartsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.