135. löggjafarþing — 109. fundur,  27. maí 2008.

heimild ríkissjóðs Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008.

640. mál
[11:00]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Ég þakka fyrir snarpar umræður. Það er nú samt svo að þrátt fyrir innihaldsrýra og slappa ræðu mína — er það ekki frasinn sem er verið að nota þessa dagana? — virðast talsmenn stjórnarandstöðunnar, og reyndar allir þeir sem tekið hafa til máls hér, gera sér vel grein fyrir því til hvers lánið er tekið þannig að þau skilaboð virðast alveg hafa komist úr stuttri ræðu minni.

Hins vegar er það deiluefnið hvers vegna þörf er á því að fara út í þessa lántöku. Þar sýnist mér að fyrri afstaða einstakra hv. ræðumanna til einstakra mála ráði afstöðu þeirra og málflutningi. Þau mál gætum við auðvitað rætt hér lengi dags, einstök mál, einstakar aðgerðir og einstakar tímasetningar. Hins vegar hefur einungis einn ræðumaður og enginn af talsmönnum stjórnarandstöðunnar minnst á þá staðreynd að nágrannalönd okkar, viðskiptalönd okkar flest, eru að glíma við samstofna vandamál og við erum að glíma við hér í dag. Það er vegna þess að rót vandans liggur ekki í okkar hagkerfi eða því sem við höfum verið að gera eða í því sem flest nágrannalönd okkar hafa verið að gera heldur liggur rót vandans í svokölluðum undirmálslánum í Bandaríkjunum, stærsta hagkerfi heimsins. Það hefur þessi áhrif á okkur öll sem tökum þátt í hinu opna hagkerfi sem byggt hefur verið upp í langan tíma. Við erum öll hluti af samofinni heild í því og tökum þar af leiðandi afleiðingu þess þegar eitthvað misferst einhvers staðar í því kerfi.

Löndin þurfa auðvitað að glíma við vandann á misjafnan hátt, það fer eftir aðstæðum heima fyrir hjá hverjum og einum og óneitanlega hefur stærð okkar og hin hlutfallslega stærð bankakerfisins hjá okkur áhrif á það hvernig við þurfum að bregðast við. Því má segja að velgengni okkar síðustu árin í því að byggja upp alþjóðlegt fjármálakerfi og gera Ísland að eins konar alþjóðlegri fjármálamiðstöð er að vissu leyti að valda okkur erfiðleikum í dag.

Hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson komst eiginlega að kjarna málsins í því sem hann sagði, að við þurfum að horfa til framtíðar. Þegar við horfum til framtíðarinnar þurfum við fyrst og fremst að hafa í huga stöðu ríkissjóðs því að það er það tromp sem við höfum til þess að spila út í því spili sem nú stendur yfir og er grundvöllurinn að því að yfirleitt er hægt að vera að tala um að ríkissjóður sé að taka lán á þessum tímum. Við þurfum að hafa í huga stöðu Seðlabankans sem hefur verði styrkt að undanförnu og stöðu gjaldeyrisvarasjóðsins, sem var tvöfaldaður fyrir tæplega 18 mánuðum og hugmyndin er nú að stækka enn frekar. Og við þurfum að tryggja eftir föngum, eins og verið er að gera í löndunum í kringum okkur, áframhaldandi virkni viðskiptalífsins og það atvinnustig sem við búum við.

Okkur hefur gengið vel á síðustu árum og margt hefur áunnist. Því má segja að verkefnið núna fyrsta kastið sé að verja það sem áunnist hefur og styrkja síðan grunninn fyrir áframhaldandi þróun hér innan lands. Við getum deilt um það hvernig það verður gert, en ég tel ekki ástæðu til þess að hella olíu á þann eld núna, tækifæri mun gefast til þess síðar.

Ég vil ljúka þessari ræðu minni með því að þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni fyrir þann skilning sem þeir hafa sýnt á því málefni sem hér liggur fyrir og fyrir þann stuðning sem ég tel að þeir hafi allir lýst yfir við málið. Ég vænti þess að málið fái skjóta og góða afgreiðslu í hv. nefnd.