135. löggjafarþing — 109. fundur,  27. maí 2008.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2007, um breytingu á IV. viðauka við EES-samninginn.

558. mál
[13:38]
Hlusta

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður gerði að umtalsefni þær forsendur sem kynnu að hafa verið fyrir undanþágu frá sameiginlegum reglum EES um orkumarkað á sínum tíma. Þær voru auðvitað fyrir hendi hvað varðar landfræðilega einangrun markaðarins. Hins vegar má ekki gleyma því að reglur af þessum toga gegna tvíþættum tilgangi, annars vegar því markmiði að skapa umgjörð um viðskipti með orku yfir landamæri og þó að það sé alveg rétt hjá hv. þingmanni að vegna landfræðilegrar einangrunar er það ekki raunhæfur kostur fyrir Íslendinga nú um stundir þá væri varhugavert að treysta því að tækniframfarir breyti því ekki á skömmum tíma.

En hinn tilgangurinn er auðvitað sá að jafna samkeppnisskilyrði fyrirtækja og atvinnulífs á gjörvöllu hinu evrópska efnahagssvæði þannig að þar gildi sömu reglur hvað varðar aðgang að orku. Markmið þeirra tilskipana sem nú bætast við EES-samninginn samkvæmt þessari tillögu til þingsályktunar er að kveðið verði skýrt á um reglur um afhendingaröryggi á raforku. Það er tilgangurinn með þessum reglum, að tryggja að kaupendur raforku, jafnt í atvinnuskyni sem aðrir, njóti tiltekins afhendingaröryggi sem sé samræmt um alla Evrópu og að því leyti er tilgangur með þessum breytingum tvíþættur.