135. löggjafarþing — 110. fundur,  27. maí 2008.

almennar stjórnmálaumræður.

[20:59]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Við framsóknarmenn erum stoltir af verkum okkar. Við höfum leitt mörg stórmál til lykta og staðið að mikilvægum framförum í okkar ágæta landi. Hlutverk okkar nú um sinn, í stjórnarandstöðu, er mikilvægt. Samkvæmt lýðræðislegum hefðum er komið að okkur að veita ríkisstjórninni aðhald. Munum við ekkert draga af okkur í þeim efnum, enda sjóuð eftir að hafa setið ríkisstjórnarmegin við borðið á síðustu 12 árum. Þótt stjórnarandstaðan í heild sé fámenn er hún að mínu mati skipuð öflugum einstaklingum sem hafa þrek og dug til að veita ofurmeirihlutanum nauðsynlegt aðhald.

Hér áðan talaði forustumaður Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, og kveinkaði sér sáran undan ræðu formanns Framsóknarflokksins, Guðna Ágústssonar. Kveinkaði sér undan réttmætri ræðu forustumanns í stjórnarandstöðu sem rækir lýðræðislegt hlutverk sitt og veitir verðugt aðhald. Hinn hörundsári forustumaður Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, er einmitt sami maðurinn og sá sem leggur í vana sinn að ata aðra stjórnmálamenn auri um nætur í bloggi sínu með svæsnari hætti en sæmir ráðherra í ríkisstjórn. Öðruvísi mér áður brá, kæri Össur.

Össur sagði í vörn sinni að ríkisstjórnin hefði staðið fyrir stærstu jöfnunaraðgerðum Íslandssögunnar. Ég spyr: Hefur almenningur orðið var við þær aðgerðir? Svarið er nei. Hér var einnig sagt að ríkisstjórnin hefði efnt eða sett í farveg 80% af loforðum sínum. Þessi tala, virðulegu landsmenn, skiptir reyndar engu máli, ekki nokkru máli. Meginloforð ríkisstjórnarinnar var að standa vörð um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, sýna efnahagslegt aðhald og það hefur ekki verið gert. Við sjáum hvert stefnir í þeim málum. Hér hefur sjaldan eða aldrei verið jafnerfitt í efnahagsmálunum og það sér almenningur.

Ríkisstjórnin gefur einnig í skyn að hún sé samhent. Almenningur lætur hins vegar ekki blekkjast. Stjórnarflokkarnir hafa borið á torg ágreining sinn í hverju málinu á fætur öðru. Það er auðvelt að nefna hér virkjunarmálin, löggæslumálin, lífeyrismál þingmanna og ráðherra og hvalveiðimálin svo að það sé nú líka nefnt, en þar kaus Samfylkingin að gefa út sérstaka yfirlýsingu í ríkisstjórninni um að hún væri algjörlega ósammála Sjálfstæðisflokknum. Þetta er nú allur samtakamátturinn sem ríkisstjórnin sýnir.

Við framsóknarmenn erum stoltir af árangri okkar í heilbrigðismálum. Þar mælumst við í fremstu röð þjóða heims. Stefna ríkisstjórnarinnar í málaflokknum er óljós. Sjálfstæðisflokkurinn segist ekki ætla að einkavæða neitt í þjónustunni þrátt fyrir að fjallað sé um það í landsfundarályktunum þeirra. Ekki vitum við heldur hve langt þeir vilja ganga í að einkareka þjónustuþætti, svo sem þjónustu sem fellur undir Landspítala – háskólasjúkrahús. Það er okkar skoðun að ef háskólasjúkrahús eigi að standa undir nafni megi ekki slíta úr starfseminni afgerandi þætti þjónustunnar til einkareksturs. Við framsóknarmenn viljum að heilbrigðisþjónustan sé rekin á félagslegum grunni svo að allir hafi jafnan aðgang að þjónustunni óháð efnahag. Við viljum ekki amerískt fokdýrt heilbrigðiskerfi, það býður upp á mikinn ójöfnuð og er mun dýrara í rekstri en félagslegt kerfi. Á Íslandi verjum við 9,5% af landsframleiðslu í heilbrigðiskerfið en í Bandaríkjunum, þar sem einkarekstur er allsráðandi, kostar kerfið 15,3% af landsframleiðslu þrátt fyrir að rúmlega 90% Bandaríkjamanna búi við talsvert lakari heilbrigðisþjónustu en við Íslendingar.

Við viljum líka að kjör umönnunarstétta og kvenna séu sérstaklega skoðuð. Í fyrradag, þann 25. maí, náðust kjarasamningar milli ríkisins og BSRB. Í þeim samningum urðu margir fyrir miklum vonbrigðum og þá sérstaklega konur. Í opinni grein sem birt er í blöðunum í dag og ber yfirskriftina „Orð án efnda eru ekki trúverðug“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, að kvennastéttir, líkt og Sjúkraliðafélag Íslands, hafi orðið fyrir verulegum vonbrigðum með viðmót það sem mætti þeim af hálfu fjármálaráðherra við gerð samningsins. Konur hafi vænst þess að staðið yrði við það fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að dregið yrði úr kynbundnum launamun og að fyrir hafi legið margítrekuð loforð um að bæta kjör umönnunarstétta sem að meginhluta eru konur.

Hvað hafa ráðherrarnir sagt í þessu máli? Tökum sem dæmi Jóhönnu Sigurðardóttur, ráðherra jafnréttismála, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar. Báðir þessir ráðherrar hafa gefið sig út fyrir að vera miklir talsmenn kvenna. Jóhanna Sigurðardóttir hefur undirstrikað að það sé eitt af brýnustu jafnréttismálum samtímans, og um leið eitt brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar, að tryggja bætt kjör uppeldis- og umönnunarstétta. Hvar eru þessi loforð núna? Af hverju stóð Samfylkingin ekki við loforð sín þegar tækifæri gafst til að bæta kjör þessara umönnunarstétta? Hefur Samfylkingin ekki áhrif í ríkisstjórninni? Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fari með kjaramál opinberra starfsmanna spyr ég: Af hverju stóð Samfylkingin ekki við þessi stóru orð nú þegar tækifæri gafst?

Ágætu tilheyrendur. Nú er svo komið að þau samfélög sem vilja taka sig alvarlega þurfa að skoða með hvaða hætti þau vilja tengjast Evrópusambandinu. Þar höfum við framsóknarmenn lagt fram sáttaleið sem við teljum að brýnt sé að fara. Þar á ég við þá leið að við viljum spyrja þjóðina hvort við fáum umboð til þess að fara í viðræður um Evrópusambandsaðild eða ekki. Við vonumst til að aðrir flokkar geti sameinast okkur í þeirri vegferð þannig að þetta mál geti fengið góða umræðu sem allra fyrst. — Góðar stundir.