almennar stjórnmálaumræður.
Herra forseti. Góðir landsmenn. Í metnaðarfullri stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar eru m.a. gefin fyrirheit um miklar breytingar í samgöngu- og menntamálum. Þessir mikilvægu innviðir samfélagsins skipta miklu þegar horft er til framtíðar íslensku þjóðarinnar. Menntamál eru eitt helsta jafnréttismál nútímans, menntun fyrir alla í einu besta menntakerfi heims er eitt af markmiðum ríkisstjórnarinnar. Samgöngumál í víðum skilningi munu ráða miklu um framtíðarmöguleika þjóðarinnar og ekki síður til að tryggja að ein þjóð búi í landinu.
Það er ánægjulegt að eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar er sögulegt átak í vegamálum. Aldrei fyrr hefur jafnmiklu fjármagni verið varið til framkvæmda í samgöngum, aukningin nemur 18 milljörðum á síðasta ári. Mörg stór verkefni eru nú í farvegi og má þar nefna Norðfjarðargöng, undirbúning nýrrar Sundabrautar, tvöföldun Suðurlandsvegar, stórframkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum, Vaðlaheiðargöng og nýja ferjuhöfn í Bakkafjöru.
Á sviði fjarskiptamála er nú unnið af miklum metnaði að uppbyggingu stofnkerfa vegna farsímaþjónustu og háhraðanettenginga. Frumforsendur þeirrar vinnu er að GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1, öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamannastöðum, að allir landsmenn sem þess óska hafi aðgang að háhraðatengingum svo og að dreifing ljósvakamiðla nái til sjómanna við landið og strjálbýlli svæða. Í lok þessa árs er gert ráð fyrir að uppbyggingu farsímaþjónustu ljúki og að í lok júlí verði opnuð tilboð í háhraðatengingar til allt að 1.800 lögbýla. Þá hefur utanríkisráðuneytið auglýst eftir tilboðum í rekstur og afnot af tveimur ljósleiðaraþráðum sem leigðir verða út til tveggja aðila. Þetta á að auka samkeppni á fjarskiptamarkaði og auka verulega möguleika á uppbyggingu á upplýsingatækniþjónustu á landsbyggðinni.
Góðir landsmenn. Á þessu ári hækka fjárframlög til mennta og rannsókna um 17%. Það er í fullu samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um aukna fjárfestingu á þessu sviði. Ekki verður látið staðar numið við þessa aukningu heldur fram haldið, því að samþykkt nýrra laga á næstu dögum um öll skólastigin, þ.e. leik-, grunn- og framhaldsskóla, svo og lög um menntun kennara og skólastjóra auk laga um opinbera háskóla mun að sjálfsögðu kalla á aukið fjármagn.
Aukið fjármagn til menntamála tryggir ekki eitt og sér bætt menntakerfi. Þar skiptir mestu það starfsfólk sem þar starfar og aðstæður þess en ekki síður líðan þeirra nemenda sem í skólunum nema. Góð samstaða hefur verið um flest þessi frumvörp og ber að fagna því vegna þess að menntakerfið er viðkvæmt fyrir örum breytingum og þarf að hafa tryggingu fyrir að ríkisstjórnarskipti kalli ekki á uppstokkun. Hin nýju lög munu auka líkur á að við náum því markmiði að menntun á Íslandi verði til fyrirmyndar á alþjóðavísu.
Dæmi um metnað í væntanlegum lögum er sú breyting að frá og með árinu 2011 þarf meistarapróf til að öðlast kennsluréttindi í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Efling náms- og starfsráðgjafar og aukin áhersla á list- og verknám gengur eins og rauður þráður í gegnum væntanleg lög, sérstaklega grunn- og framhaldsskólalög, en miðað við umræðuna um framhaldsskólalögin mætti halda að mesta breytingin á því skólastigi tengdist auknum fjölbreytileika stúdentsprófsins. Það tel ég ekki mestu breytinguna heldur breytt staða verk- og starfsnáms.
Áratugum saman hefur verið rætt um að efla verknám og tryggja betur stöðu þess innan skólakerfisins. Ég fullyrði að með væntanlegum framhaldsskólalögum er stigið stærsta skref sem sést hefur í þá átt. Ég trúi því að ef rétt er á málum haldið muni fljótlega koma í ljós mjög miklar breytingar sem auka og efla verk- og starfsnám enda full ástæða til.
Í nýjum framhaldsskólalögum er boðað aukið frelsi og dregið úr miðstýringu, sem er fagnaðarefni. Ég er ekki í nokkrum vafa um að aukið frelsi mun tryggja meiri fjölbreytileika, tryggja betur að komið verði til móts við þarfir hvers og eins nemanda, m.a. með fjölmenningarlegum áherslum í kennslu. Í væntanlegum lögum er stigið skref til að gefa nemendum fleiri möguleika á að ljúka námi á mislöngum tíma og síðast en ekki síst er tryggt að bóknám og verknám verði jafngilt innan framhaldsskólanna. Það er stórt skref sem mun leiða til þess að við fáum ekki bara fjölbreyttari skóla heldur betri skóla og betur undirbúna nemendur hvort heldur er til starfa eða frekara náms. Ég er sannfærður um að svo verður vegna þess að í framhaldsskólakerfinu starfar margt hæfileikaríkt fólk sem bíður eftir tækifærum. Ég er viss um að margir skólanna bíða í óþreyju eftir að þróast í þá átt sem boðuð er í væntanlegum framhaldsskólalögum. Í þeirri þróun eru mörg tækifæri.
Góðir landsmenn. Þó að ríkisstjórnin hafi nú þegar tryggt framgang margra góðra mála bíða hennar fleiri verkefni við að bæta okkar góða samfélag. Áfram verður unnið af festu og öryggi því að innan ríkisstjórnarflokkanna er góður starfsandi og samstaða um þau verkefni sem þarf að sinna. — Góðar stundir.