samkeppnislög.
Herra forseti. Að sjálfsögðu mega samtök ekki vera vettvangur fyrir brotlega starfsemi, það liggur alveg í hlutarins eðli. Hv. þingmaður greindi sjálfur frá dæmum um ólögmætt samráð þar sem engin samtök voru til staðar þannig að það er ekki forsenda þess.
Bændasamtökin sjálf eru auðvitað ekki í framleiðslu eða með sölu á vörum bænda. Þau eru meira samráðsvettvangur milli aðila sem síðan mynda undirsamtök eða búgreinasamtök o.s.frv. sem stunda framleiðslu. Ég held því að það sé alveg óhætt að segja að það viðhorf sem kom fram hjá Samkeppniseftirlitinu varðandi Bændasamtökin hafi vakið margar spurningar um hvort menn væru komnir dálítið langt í þessu efni. Það vakti alla vega spurningar hjá mér og mörgum fleirum sem fannst Samkeppniseftirlitið vera farið að ganga býsna langt.
Auðvitað er það hárrétt hjá hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni að menn þurfa að gæta sín að fara ekki yfir nein mörk í þeim efnum. Að sjálfsögðu á ekki að fara yfir þá línu sem skilur á milli löglegrar starfsemi og ólöglegrar starfsemi. Það er auðvitað mikilvægt og ég held að við getum öll verið sammála um það.