breyting á lögum er varða verðbréfaviðskipti.
Herra forseti. Ef ég skil spurningu hv. þingmanns rétt þá skal benda á að orðið „samruni“ í þessu samhengi er í núgildandi lögum og við erum ekki að leggja til breytingu á því. Varðandi þennan efnislega punkt sem er í breytingartillögunni þá er verið, eins og hv. þingmanni er kunnugt um, að reyna að jafna stöðu sparisjóðanna og annarra fjármálafyrirtækja. En við fórum ekki í að breyta hugtökunum, þ.e. að kanna hvort samruni eigi við í þessu tilviki eða ekki, af því að það er í núgildandi lögum.
Samruni samkvæmt lögunum er samruni sparisjóðs við annað fyrirtæki nú aðeins heimill hafi sparisjóðnum verið breytt í hlutafélag áður en nú er verið að opna þann möguleika að sparisjóður geti keypt einstaka rekstrarhluta, t.d. banka og útibú, án þess að verða breytt í hlutafélag. Þannig á þetta að vera að öllu leyti ívilnandi fyrir sparisjóðina og gæti styrkt stöðu þeirra, ekki síst úti á landi.