135. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2008.

breyting á lögum er varða verðbréfaviðskipti.

538. mál
[13:40]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það er einmitt þannig sem ég skildi það að sparisjóðurinn gæti í sjálfu sér keypt fyrirtæki annars fjármálafyrirtækis þótt hann sé ekki hlutafélag en það er ekki sama og samruni. Í þessu viðkvæma umróti sem er í kringum sparisjóðina tel ég mjög hættulegt að sagt sé að sparisjóður geti runnið saman við annað óskylt fyrirtæki því að samruni þýðir bara allt annað. Samruni þýðir að einingar renna saman og blanda saman reytum sínum á forsendum hvors annars. Ég leit svo á að hér væri aðeins verið að heimila sparisjóðnum að kaupa en ekki að leggja sig niður eða renna saman við aðra.

Ég legg áherslu á að það er mjög mikilvægt að hugtakanotkunin sé vönduð þannig að það sé öruggt að engin undirmál eru hér á ferðinni. Þessi beiðni er komin frá stóru fjármálafyrirtækjunum og frá Fjármálaeftirlitinu og það verður að segjast eins og er að minni sparisjóðirnir bera ekki allt of mikið traust til þeirra.