135. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2008.

aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

539. mál
[14:49]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg rétt að þessi lög voru að stofni til samþykkt árið 2006. Núna er hins vegar verið, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, að skerpa á ákveðnum atriðum sem þar voru ekki áður eins og að leggja meiri áherslu á eftirlit með einstaklingum vegna stjórnmálalegra tengsla. Þessi lög voru samþykkt árið 2006 og þykir ástæða til að breyta þeim vegna þess að þar var ákveðinn kafli sem hafði ekki verið innleiddur sem laut fyrst og fremst að hryðjuverkum og áðurnefndum þætti.

Mér finnst alveg eðlilegt að farið sé yfir stöðu þessa máls. Ég sá þennan lista með Al Kaída en það vill svo til að það eru býsna frjálsleg tök — að mér virðist — sem ýmis ríki hafa á því að skilgreina hvaða samtök heyra undir Al Kaída, hvaða einstaklingar tengjast, og ég er ansi hræddur um að listi sumra ríkja sé býsna langur hvað það varðar. Menn hafa tilhneigingu til að flokka allt undir einhver ein samtök eins og Al Kaída án þess að það sé endilega svo rækilega rökstutt.

Ég spurði hvort þetta væri tæmandi listi, svo var ekki. Nefndarformaður hefur þá vafalaust betri upplýsingar ef svo er. Varðandi lista yfir þær þjóðir sem hér var verið að tala um þá vantar stóran hóp þjóða þarna inn. Það vantar mörg lönd þar sem sumir, þar á meðal Bandaríkjamenn og þeir sem hanga aftan í þeim, telja að starfi ýmsir þjóðfrelsishópar sem þeim eru ekki að skapi. (Forseti hringir.) Ég óttast að það geti leitt inn í íslenskt eftirlit.