135. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2008.

viðbrögð ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar SÞ.

[20:08]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl):

Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni kem ég upp til að taka þátt í þeim umræðum sem hér hafa orðið og tel það eðlilegt. Ég ætla að halda þar áfram sem frá var horfið.

Ég lýsi yfir ánægju með þá yfirlýsingu sem hæstv. forsætisráðherra gaf um að Alþingi yrði gert grein fyrir því hvernig hæstv. sjávarútvegsráðherra ætlar að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Mér finnst að vísu vonum seinna að það sé gert, að þingi og þjóð sé gerð grein fyrir því hvernig á að bregðast við og uppfylla skilyrði um að mannréttindum fylgt sé. Ég tel að eðlilegra hefði verið að bregðast við með þeim hætti að málið hefði getað fengið eðlilega þinglega meðferð og að Alþingi Íslendinga hefði komið að því að gera þær breytingar á gjafakvótakerfinu svo að mannréttindum yrði fylgt í framtíðinni en ekki látið sitja við að hugsanlega sé verið að gera eða fara hálfa leið að því marki sem nauðsynlegt er að fara til enda.