135. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2008.

Afbrigði um dagskrármál.

[20:47]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Dagskrárliður nr. 50 er ekki jafnhápólitískur og sá 49. En ég vil, eins og ég sagði hér áðan, beina athygli að því að ekki er búið að dreifa nefndaráliti eða breytingartillögu. Af þeirri ástæðu greiði ég atkvæði gegn því að málið sé tekið á dagskrá núna.