135. löggjafarþing — 112. fundur, 28. maí 2008.
Afbrigði um dagskrármál.
Virðulegi forseti. Ég skil vel hlutverk Bobbys Fischers hvað varðar sögu Íslands í skákheiminum. Ég get því miður ekki í góðri trú heiðrað mann sem hefur fagnað hryðjuverkaárásum. Ég mun því leggja til að þetta skáksetur verði í staðinn tengt sögu Íslands í skákheiminum.