135. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2008.

ársreikningar.

527. mál
[21:07]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði áðan um fyrirvara mína en vil vísa í ræðu mína við frumvarp til laga um endurskoðendur í þeim efnum og set fram sams konar ósk um að þetta mál verði tekið aftur til nefndar til að fara yfir það sama atriði og ég gerði athugasemd við þá.