atvinnuréttindi útlendinga o.fl.
Frú forseti. Við ræðum breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og fleiri laga. Það hefur margt af því sem mér lá á hjarta komið fram í umræðunni. Hv. síðasti ræðumaður, Árni Þór Sigurðsson, fjallaði um þá tilhneigingu ríku Vesturlandanna að soga til sín menntað vinnuafl frá fátækari ríkjum.
Mér leikur forvitni á að vita hvort nefndin hafi tekið til sérstakrar skoðunar nýsamþykkta tillögu sem borin var upp á vettvangi Norðurlandaráðs af velferðarnefnd Norðurlandaráðs, og ef ég man rétt samþykkt á síðasta Norðurlandaráðsþingi, sem fjallaði um norrænt frumkvæði til að koma á fót má segja alþjóðlegum samningi um ráðningu heilbrigðisstarfsfólks. Tillagan gengur út á það að Norðurlöndin taki frumkvæðið í þeim efnum að ná samningi um að sækjast ekki eftir menntuðu heilbrigðisstarfsfólki frá fátækari ríkjum, þróunarlöndunum. Tilmælunum var beint til norrænu ráðherranefndarinnar og ég geri ráð fyrir að farið sé að fjalla um þá tillögu á vettvangi hennar. Tillagan er til komin vegna t.d. þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem gerir ráð fyrir því að á marktækan hátt sé dregið úr fátækt fyrir 2015. Hvernig gerum við það? Meðal annars með því að tryggja að menntað fólk í fátækari ríkjum fái störf heima hjá sér við hæfi og geti þá búið til samfélag sem á einhverja möguleika á því að verða bjargálna og metta og mennta sitt fólk.
Tillagan vísar til þess að talsverð barátta er um menntað vinnuafl frá þróunarlöndunum, ekki síst á Norðurlöndum. Ég nefni þar heilbrigðisstarfsfólk, heilbrigðisstéttirnar sem eru verulega eftirsóttar í okkar heimshluta. Því hvernig ætlum við að leysa verkefni velferðarsamfélagsins? Hvernig erum við að leysa verkefni velferðarsamfélagsins á Norðurlöndunum í dag? Við erum með gríðarlegan fjölda af menntuðum hjúkrunarfræðingum og menntuðu heilbrigðisstarfsfólki á Norðurlöndunum sem sóst hefur verið eftir, sem komið hafa frá þróunarríkjunum.
Núna er samviska Norðurlandaþjóða vakin hvað þetta varðar og Norðurlandaþjóðirnar, a.m.k. Norðurlandaráð óskar eftir því og brýnir ráðherranefndina til dáða í þessum efnum að koma á alþjóðlegum samningi sem hjálpar til að gefa fólki, menntuðu fólki í heilbrigðisstéttum atvinnutækifæri heima fyrir. Ég tel því nauðsynlegt að horfa til þeirrar tillögu þegar 6. gr. í frumvarpinu er skoðuð. Mig langar til þess að vita það frá formanni nefndarinnar hvort þessi tiltekna samþykkt var sérstaklega skoðuð í sambandi við þetta mál.
Þetta er líka umhugsunarefni vegna þess að við erum að samþykkja á vettvangi Norðurlandaráðs gríðarlega metnaðarfullar tillögur sem eru stefnumarkandi að mörgu leyti. Okkur hættir oft til að láta þar við sitja. Þeir þingmenn sem starfa á vettvangi Norðurlandaráðs hafa ákveðna vitneskju en hætta er á því að vitneskjan fari ekki lengra. Hún komist kannski ekki á leiðarenda eins og ég óttast að hafi verið hér í þessu tilfelli.
Mér finnst það verulega mikið umhugsunarefni fyrir nefndarformenn í nefndum á Alþingi Íslendinga, þeir þurfi hreinlega að setja það á minnislistann sinn að athuga hvort samþykktir Norðurlandaráðs varði þau mál sem við erum að vinna og hreinlega að skoða í hvert eitt skipti hvort það kunni nú að vera að einhverjar slíkar samþykktir séu til sem rétt er að taka tillit til.
Frú forseti. Mér þætti fengur að því að heyra það frá hv. formanni nefndarinnar hvað þetta tiltekna mál varðar, hvort þessi tiltekna samþykkt hafi komið inn á borð nefndarinnar við skoðun málsins.