135. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2008.

Landeyjahöfn.

520. mál
[23:42]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F):

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Grétari Mar Jónssyni, ég bind vonir við að hann hafi rangt fyrir sér í þessu tiltekna máli.

Ég vil koma því á framfæri að ég tel ekki rétt á þessu stigi — við getum endalaust haft efasemdir um þetta verk og við getum líka velt fyrir okkur gildi þess að einhverjir Vestmannaeyingar — við vitum ekki nákvæmlega hve margir, sú tala er nú nokkuð óræð þegar reynt er að telja þetta — hafi lýst efasemdum. Það er eðlilegt með stað eins og Vestmannaeyjar þar sem samgöngur eru mjög flóknar og leiðirnar að markinu mjög margar. Staðurinn hefur algjöra sérstöðu fyrir utan þau litlu eyjasamfélög sem við eigum fyrir norðan landið, sem eru þó alls ekki sambærileg að stærð, og ekki óeðlilegt að upp komi deildar meiningar. En nú hefur verið tekin ákvörðun og þá er mikilvægt að hið háa Alþingi ýti ekki undir ýfingar sem hafa um margt verið samfélaginu þar nokkuð erfiðar á undanförnum missirum.

Það er rétt að ekki náðist samkomulag milli sveitarfélaganna, Rangárþings eystra og Vestmannaeyja — eða ekki var látið reyna á það til hlítar — um uppbyggingu þessarar hafnar. En það er líka að mörgu leyti mjög eðlilegt að þessi höfn sé ríkiseign og ríkisframkvæmd og rekin af ríkinu. Það er þannig með þjóðvegi að öðrum þéttbýliskjörnum á Íslandi, eins og t.d. að Reykjavík. Við höfum vegi sem liggja að þessum stöðum sem eru í eigu Reykjavíkur.

Hið sama á við um aðra staði þannig að við hljótum að geta gert þá kröfu — það er hlutverk ríkisins að sjá til þess að samgöngur séu með viðunandi hætti og í nútímalegu horfi miðað við þær kröfur sem við gerum í dag. Sjálfur hefði ég viljað sjá það að menn, eins og hér var vikið að, hefðu reiknað sig til enda varðandi jarðgangamöguleikann. En ákveðið var að gera það ekki og ekkert meira um það að segja. Mikilvægt er að sú framkvæmd sem nú er lagt upp með tefjist ekki heldur höldum við ótrauð áfram við hana vegna þess að samfélagið í Vestmannaeyjum hefur verið í mikilli vörn.

Það er ekki gott að þar verði menn fyrir vonbrigðum vegna þessa máls og það er sumpart þess vegna sem ég kem hingað upp. Það er til að ræða um framhaldið af byggingu á sjálfri höfninni. Það er ekki nóg að hafnarframkvæmdin gangi vel. Eftir að hafa verið í Vestmannaeyjum með einum helsta sérfræðingi Siglingastofnunar í þessu máli, á fundi með Eyjamönnum, sem margir hverjir hafa verið mjög gagnrýnir á þetta, þar sem málið var rætt af mikilli hreinskilni, hef ég meiri trú á því en áður að þau tæknilegu vandamál sem kunna að vera á ferðinni séu öll með þeim hætti að hægt sé að leysa þau og framkvæmdin sé raunhæf. Vonandi eru kostnaðaráætlanir einnig raunhæfar án þess að ég ætli að fullyrða neitt um það. Eins og á við um aðrar opinberar framkvæmdir er mikilvægt að reynt sé að halda sig við kostnaðaráætlanir og við gerum þær kröfur.

Aðeins varðandi samgöngurnar þegar komið er upp á land. Það er rétt, sem bent hefur verið á, að ekki er í sjálfu sér búið að fastsetja það með neinum hætti hvernig áætlunarbílaakstri verði háttað frá Bakkafjöru eða frá Landeyjahöfn til annarra staða. Ekki er rétt að líta svo á að nauðsynlegt sé að rútuferðir frá Landeyjahöfn t.d. til Reykjavíkur séu jafnmargar og ferðirnar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Landeyjahöfn er aðeins steinsnar frá höfninni í Vestmannaeyjum og aðstæður verða væntanlega líkar því og gerist í sambærilegum byggðarlögum úti á landi eins og t.d. Borgarnesi og Stykkishólmi, sem eru í sambærilegri fjarlægð, þeir sem ekki ferðast um á einkabílum hafa ekki það val að geta farið hvenær sem þeim hentar. Það hefur ekki verið þannig hér. Það er þannig í mun fjölmennari löndum að almenningssamgöngur eru á nokkurra mínútna fresti. Við erum reyndar orðnir svo lánsamir á Selfossi að hafa þær á upp undir tveggja tíma fresti. Það er mjög mikilsvert. Eins á Akranesi, þar eru mjög örar samgöngur. En það er ekki sjálfgefið að svo verði þarna. Langflestir sem nota ferjuna munu fara á eigin bíl alla vega að Landeyjahöfn. Sumir kjósa síðan að taka bílinn með til Vestmannaeyja en aðrir spara sér það og geyma þá bílinn á sandinum. Þeir sem nota áætlunarbíla verða undir þá sök seldir, eins og annars staðar á landinu, að hafa ekki stöðugar ferðir.

En það sem ég ætlaði að koma sérstaklega inn á, svo að ég sé nú ekki að lengja þetta — það líður á kvöldið og styttist raunar í næsta dag. Mig langar að ræða framhaldið á uppbyggingu Landeyjahafnar. Það er mjög mikilvægt að vel sé haldið á spilunum og það sem hefur gerst í því máli, eftir þeim upplýsingum sem ég hef, er að aðilar í Vestmannaeyjum, þar á meðal Vestmannaeyjabær og fyrirtæki þar, hafa gert tilboð til Siglingastofnunar um rekstur og smíði á ferju. Það tilboð töldu opinberir aðilar að væri of hátt og kann vel að hafa verið rétt mat. Það tilboð hefur síðan verið lækkað með sérstöku samningakaupatilboði. Vestmannaeyingar bíða nú eftir því hvaða svör koma í því sambandi, hver næstu skref verða. Fresturinn vegna þessa tilboðs hefur verið framlengdur. Þar sem hæstv. samgönguráðherra er hér í salnum yrði ég honum afar þakklátur ef hann gæti upplýst þjóð og þingheim aðeins um stöðu þess máls.

Ef fara á í venjubundið útboð á ferju, sem mér sýnist eiginlega vera eina leiðin ef þessu tilboði verður alfarið hafnað, er ég viss um að það getur tafið verkið mjög mikið. Þriðja leiðin væri sú að ríkið tæki verkið alfarið að sér en ég hef líka trú á því að það gæti tafið verkið miðað við þær forsendur að Vestmannaeyingar hafa haft í höndunum samning upp á smíði ferju sem yrði lokið 2009 og mjög mikilvægt er að það markmið náist. Það skiptir mjög miklu máli upp á þær væntingar sem eru varðandi þessa samgöngubót og ekki síður vegna þeirrar viðkvæmu stöðu sem vikið hefur verið að í tengslum við undirskriftasafnanirnar sem hafa verið í Vestmannaeyjum að reynt sé að ná samningum um þá leið sem Eyjamenn eru með. En ef hæstv. samgönguráðherra hefur möguleika á að svara okkur eitthvað um það þætti mér vænt um það.