135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[11:08]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta var nú eiginlega ekkert andsvar við ræðu minni vegna þess að ég var akkúrat að ræða það að við þyrftum að hafa samningsþekkingu til þess að ná sem mestu út úr þeim samningum sem gerðir hafa verið og gerðir verða í framtíðinni til þess að veita þá þjónustu sem við erum sammála um að veita. Við erum að reyna að tryggja það til framtíðar að hér verði góð heilbrigðisþjónusta eins og er nú í landinu. Við viljum að hún haldi áfram að vera góð og að við náum að veita hana fyrir þá fjármuni sem ráðstafað er til þessara mála.

Svo að ég rammi inn það sem við í Frjálslynda flokknum höfum sagt almennt um heilbrigðisþjónustu og velferðarþjónustu á undanförnum árum þá er það mjög einfalt: Ef það þarf að leggja hærri skatta á landsmenn til þess að viðhalda hér góðri, öflugri heilbrigðis- og velferðarþjónustu þá geri menn það.

Ég og flokksmenn mínir erum talsmenn þess að veitt sé góð og öflug heilbrigðisþjónusta. Ef við þurfum til þess meiri fjármuni þá leggjumst við ekki gegn því að þeirra sé aflað. Við gerum hins vegar kröfur til þess að þeim sé ráðstafað á sem skynsamlegastan hátt svo það fáist fyrir þá sem mest þjónusta öllum til handa.