sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Í umræðunum hefur oft verið vitnað til Bretlands, ekki er nema von að maður vilji meta stöðuna þar. Norrænt kerfi stendur líka í varnarbaráttu vegna þess að Evrópusambandið hefur ekki tilskipun um heilbrigðis- og félagsþjónustu, það er eingöngu með þessa stöpla sem maður hefur, það er engin tilskipun um almenningsþjónustuna, heilbrigðisþjónustuna eða velferðarþjónustuna heldur er þetta um viðskiptaumhverfið og atvinnumarkaðinn. Það er því engin vörn. Viðskiptahugmyndin kemur svo sterkt inn frá Evrópusambandinu og flæðir yfir Norðurlöndin líka. Við á Norðurlöndunum sem höfum byggt upp velferðarkerfi á sameiginlegri opinberri þjónustu og velferðarþjónustu sem við höfum verið mjög stolt af og hefur verið góð og ódýr samanborið við markaðsvædda þjónustu, eigum því í vörn vegna þessa.
Ég vil svara því um nefndardagana að það er alveg sama hversu lengi við sitjum á nefndardögum ef umsagnarfresturinn er svo skammur að umsagnaraðilar hafa ekki nægjanlegan tíma til að undirbúa sig og skila af sér, það kom fram.
Ég vil bara enn og aftur minna á gráu handbókina um hvernig undirbúa og ganga á frá frumvörpum og hvernig afgreiða á þau á hinu háa Alþingi. Mál þurfa tíma (Forseti hringir.) og við verðum að gefa okkur þann tíma.