sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Mér er líkt farið og hv. þm. Ástu Möller að ég á ekki auðvelt með að átta mig á andstöðu hv. þm. Þuríðar Backman, sérstaklega ekki í ljósi þeirra orða hennar að hún sé fylgjandi kostnaðargreiningu og að greining á kostnaði sé forsenda fjárveitinga til opinberra stofnana. Ef við erum sammála um það þá held ég að við getum verið sammála um býsna margt því að hv. þingmaður tók líka fram að hún vildi standa vörð um þá forsendu að hér yrði áfram félagslegt heilbrigðiskerfi. Um þá forsendu erum við algjörlega sammála.
Það sem hún leggur hins vegar áherslu á er að við séum með einhverjum hætti að búa í haginn fyrir frekari einkarekstur. Það er algjörlega sjálfstæð ákvörðun við hverja er samið eða á hvaða forsendum og þar af leiðandi tel ég að gerður sé ansi mikill úlfaldi úr lítilli mýflugu.
Varðandi eilífar tilvísanir í Bretland er mjög athyglisvert að hv. þingmenn Vinstri grænna hafa nú himin höndum tekið og vitna mjög til Bretlands en forðast eins og heitan eldinn að ræða reynsluna frá Svíþjóð þaðan sem kerfið er upprunnið og þar sem því var komið á af sænskum jafnaðarmönnum með tilstyrk vinstri grænna í Svíþjóð. Þegar horft er til Bretlands er alveg ljóst, og kom jafnframt fram í ágætu erindi dr. Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur stjórnsýsluráðgjafa í gær í kjölfar erindis dr. Pollock á ráðstefnu Háskólans á Bifröst, að aðstæður hér eru í grundvallaratriðum ólíkar aðstæðum í Bretlandi sem gera samanburð algjörlega ómarktækan. Sem dæmi má nefna að dr. Pollock staðhæfði í gær, og kann það vel að vera rétt, ég þekki það ekki, að engar upplýsingar væru tiltækar um ýmsar forsendur samningsgerðar, t.d. væru engar upplýsingar um fjölda rúma hjá einkaaðilum og engar upplýsingar væru um starfsliðsfjölda eða um innlagnir. Ekki þarf að lesa lengi í því frumvarpi sem hér er til umræðu (Forseti hringir.) til að sjá að það er óhugsandi að sú verði staðreyndin eftir lögfestingu þess.