135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[11:54]
Hlusta

Frsm. meiri hluta iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Við 3. umr. þessa máls viljum við í meiri hluta nefndarinnar koma inn á eitt atriði og skýra það frá okkar sjónarhóli en það var umræða um 4. gr. frumvarpsins sem fjallar um flutningsfyrirtæki.

Okkur þykir mikilvægt, virðulegi forseti, í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram og við teljum hafa verið afar misvísandi, að skýra sjónarmið okkar í málinu með framhaldsnefndaráliti. Því fengum við á fund okkar þá Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðmund Inga Ásmundsson frá Landsneti, en inn í framhaldsnefndarálitið vantar að við fengum einnig fulltrúa iðnaðarráðuneytisins, þá Kristján Skarphéðinsson og Guðjón Axel Guðjónsson til fundar við nefndina.

Í frumvarpinu er lagt til að sett verði sú almenna regla að flutningsfyrirtækið, eins og önnur sérleyfisfyrirtæki, dreifiveitur, hitaveitur og vatnsveitur, skuli ávallt vera í meirihlutaeigu opinberra aðila. Þannig verði lögbundið að slík starfsemi sé undir yfirráðum opinberra aðila og um leið að gætt sé lagasamræmis.

Í tilefni af athugasemdum sem fram komu í 2. umr. málsins tekur meiri hlutinn fram að ákvæði 4. gr. frumvarpsins eru almenn og fella ekki úr gildi ákvæði til bráðabirgða XII í raforkulögum, nr. 65/2003, sem halda mun gildi sínu þar til Alþingi tekur ákvörðun um annað. Bráðabirgðaákvæðið felur í sér að eigendum hlutafjár í flutningsfyrirtækinu er einungis heimilt að framselja hlutafé sitt til annarra hlutafjáreigenda í fyrirtækinu en ekki til aðila utan þess.

Þá vill meiri hlutinn jafnframt benda á að þær breytingar sem gerðar eru í 4. gr. frumvarpsins á 1. mgr. 8. gr. raforkulaga breyta ekki ákvæðum sérlaga um einstök orkufyrirtæki hvað heimildir þeirra til sölu eignarhluta í Landsneti varðar.

Niðurstaða meiri hlutans er því sú að umrædd breyting feli ekki í sér yfirlýsingu um sölu á minnihlutaeign í Landsneti. Hér er eingöngu um að ræða almenna breytingu á lagagrein í gildandi raforkulögum sem ætlað er að tryggja að lágmarki meirihlutaeign opinberra aðila í fyrirtækinu. Aðrar greinar standa þar sem kveðið er á um hvaða fyrirtæki eiga í Landsneti ásamt bráðabirgðaákvæði. Öll þau fyrirtæki sem eiga í Landsnet nú eru í 100% eigu opinberra aðila.

Í ljósi þessa, virðulegi forseti, teljum við að eftir þær atkvæðagreiðslur sem um garð eru gengnar að þetta mál verði samþykkt nú eftir 3. umr. óbreytt.

Undir þetta ritar sú sem hér stendur, sem er formaður nefndar og framsögumaður, og hv. þm. Kristján Þór Júlíusson, Einar Már Sigurðarson, Guðni Ágústsson, Ragnheiður E. Árnadóttir og Björk Guðjónsdóttir.