135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[12:12]
Hlusta

Frsm. meiri hluta iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spurði hér spurninga sem reyndar var beint til iðnaðarráðherra en mér er samt engu að síður ljúft og skylt að svara spurningu hennar varðandi það hvort Samband íslenskra sveitarfélaga eigi fulltrúa í endurskoðunarnefndinni. Sú er raunin og þeir sendu bréf með tilnefningu sem dagsett er 1. apríl sl. Þeir eru því hluti af því og hafa auk þess gengið frá tilnefningu sinni þannig að það sé upplýst og spurningunni svarað.

Ég vil auk þess gera athugasemd við eitt atriði. Mér finnst dálítið einkennileg nálgun hv. þingmanns varðandi það að opna eigi fyrir einkavæðingu á 49% hlut í dreifiveitum. Staðreyndin er sú (ÁI: Sérleyfisrekstri …) — sérleyfisrekstri. Staðreyndin er sú að í öllum þeim tilvikum þar sem þetta er sett inn er verið að tryggja að lágmarki meirihlutaeign hins opinbera, það er það sem er verið að gera. Það er ekki verið að lýsa yfir að það eigi að setja 49% á markað heldur er verið að tryggja meirihlutaeign hins opinbera, að lágmarki meirihlutaeign. Það er verkefnið vegna þess að í dag er þetta galopið og það er það sem vakir fyrir okkur.

Þess vegna harma ég, þó að mér leiðist að nota orðið „harma“ mikið, en ég harma þessa nálgun hv. þingmanns. Ég hefði haldið að hún og hennar flokkur mundu fagna því að meirihlutaeign hins opinbera væri í það minnsta tryggð vegna þess að eins og hv. þingmaður veit er þetta allt galopið í dag.