breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður lýsti stöðunni eins og hún er í dag og sagði að öll fyrirtæki utan Hitaveitu Suðurnesja séu 100% í eigu hins opinbera. Þetta er alveg hárrétt. Hún sagði jafnframt: Um þetta kerfi vill Vinstri hreyfingin – grænt framboð standa vörð.
Það sem átti sér stað var einmitt innan þessa kerfis sem bramboltið með Hitaveitu Suðurnesja varð. Það var innan þess lagaramma sem við höfum í dag. Vill hv. þingmaður standa vörð um þann lagaramma? (Gripið fram í.) Það er þess vegna sem við erum að fara í þessa vegferð. Hér er talað um metnaðarleysi. Metnaðarleysið er ekki meira en það að með þessari lagasetningu erum við búin að tryggja áframhaldandi opinbert eignarhald á orkuauðlindunum. Við erum sömuleiðis að loka fyrir að sérleyfisstarfsemi geti orðið í meirihlutaeign einkaaðila með því að setja ákvæði inn í lögin sem tryggja að lágmarki — og við skulum hafa það í huga — meirihlutaeign hins opinbera í þessum fyrirtækjum.
Ég mun, virðulegi forseti, ekki hafa fleiri orð um þetta mál vegna þess að ég tel það vera vel reifað og hef komið sjónarmiðum okkar vel á framfæri í þessari umræðu. Ég vil þakka fyrir hana þótt okkur greini á um einstök atriði. Engu að síður fagna ég þeirri samstöðu sem náðst hefur um stórt grundvallarmál sem voru orkulindirnar sjálfar en vissulega greinir okkur á um útfærslur og mun án efa ávallt gera það hér og í fleiri málum. En ég þakka hv. þingmanni fyrir gott samstarf í nefndinni að þessu máli og hennar gríðarlega góða innlegg þar vegna þess að hún hefur djúpa þekkingu á málinu og það gagnaðist nefndinni vel.