135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[12:31]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hreint með ólíkindum hvað ég og hv. þm. Álfheiður Ingadóttir erum orðnar sammála í þessu máli, (Gripið fram í.)það er eitthvað skrýtið en það er bara ánægjuleg tilfinning. Ég tek heilshugar undir með henni að hv. iðnaðarnefnd fái einhvers konar aðkomu að þessari nefnd og fái að fylgjast vel með þeim störfum enda segi ég það enn og aftur að þessi nefnd er afar mikilvæg.