135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[12:41]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Bara örfá orð til viðbótar — þessu er nú alveg að ljúka — þá er það eins og hv. þingmaður segir að stórir hlutir hafa gerst á þessum markaði á tiltölulega fáum árum. Það eru bara örfá ár síðan að Landsvirkjun hafði einkarétt á að framleiða raforku á Íslandi (Gripið fram í.)— og vissulega miklar skyldur einnig. (Gripið fram í.) Vissulega miklar skyldur líka. En við erum komin inn í gjörbreytt umhverfi og það eru ekki mörg ár síðan það gerðist.

Þetta frumvarp sem nú kemur fram er í rauninni ekki óeðlilegt framhald af því sem áður hafði gerst þótt alltaf geti verið einhver ágreiningur um það hvernig málum skuli háttað. Þetta er í raun framhald af því sem áður hafði gerst og hlaut á einhvern hátt að þurfa að taka á. Ég er tiltölulega sátt við hvernig þessu máli lyktaði þannig að ég get alveg kinnroðalaust stutt það.