135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[13:40]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Eins og kom fram hjá hv. þm. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, formanni samgöngunefndar, liggur fyrir nefndarálit sem allir nefndarmenn skrifa undir en ég skrifa undir álitið með fyrirvara og mig langar að gera grein fyrir því hvers vegna það er. Fyrirvarinn felst fyrst og fremst í því að ég flyt nokkrar breytingartillögur til viðbótar við það sem fram kemur í nefndarálitinu þar sem raktar eru breytingar eða áherslur sem formaður nefndarinnar hefur nú þegar gert grein fyrir.

Ég ætla að gera grein fyrir þeim breytingartillögum sem ég flyt við þingsályktunartillöguna um viðauka við fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2007–2010. Þær eru birtar á þingskjali 1121.

Í fyrsta lagi legg ég til að við bætist nýr liður undir kaflanum Grunnnet, aðrir flugvellir. Þar er tillaga mín að sett verði inn fjármagn á verkefnið Bíldudalur í þeim tilgangi að undirbúa að unnt verði að ráðast í lengingu Bíldudalsflugvallar. Það er að mínu viti mjög þýðingarmikil framkvæmd. Það er þýðingarmikið ekki síst til þess að treysta samgöngur við miðhluta Vestfjarða og Bíldudalsflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í því sambandi. Í áætluninni sem er í gildi er einungis gert ráð fyrir um 30 millj. kr. árið 2010 til Bíldudalsflugvallar en það er fjármagn sem er ætlað til bygginga og aðflugs- og öryggisbúnaðar. En það er hins vegar engin fjárveiting í flugbrautir eða flughlöð. Tillaga mín er að þar komi inn 50 millj. kr. tvisvar sinnum árin 2008–2009.

Í öðru lagi legg ég til að við liðinn 4.1.4, sem heitir Almenningssamgöngur, bætist nýr töluliður sem fær þá heitið Almenningssamgöngur í þéttbýli, og þar verði lagðar fram 350 millj. árið 2008, 500 millj. árið 2009 og 650 millj. árið 2010. Samtals um 1500 millj. kr. á þriggja ára tímabili. Ég geri grein fyrir því í stuttri greinargerð með breytingartillögunum að almenningssamgöngur í þéttbýli er vaxandi verkefni sem sveitarfélögin sinna enda þótt það sé ekki lögbundið hlutverk þeirra.

Í nútímasamfélagi eru almenningssamgöngur órjúfanlegur hluti hins almenna samgöngukerfis og það er eðlilegt að mínu viti að hið opinbera eða ríkið leggi til fjármagn til þessa hlutar samgöngukerfisins ekki síður en vegakerfisins. Þessi tillaga gerir ráð fyrir því að sett verði inn framlag til þeirra verkefna til þess einkum að mæta útgjöldum sveitarfélaganna vegna olíugjalds og virðisaukaskatts af almenningsvögnum en einnig til að taka þátt í gerð sérstakra akreina fyrir almenningssamgöngur þar sem það á við.

Það er rétt að halda því til haga að allmörg sveitarfélög eru farin að reka almenningssamgöngur. Á höfuðborgarsvæðinu hefur það að sjálfsögðu verið svo til margra ára og áratuga en í mörgum öðrum sveitarfélögum er farið að reka almenningssamgöngur, svo sem eins og í Reykjanesbæ, Ísafjarðarbæ, Akureyri, Fjarðabyggð og víðar. Því er gert ráð fyrir að þessu fjármagni verði hægt að skipta til að koma til móts við þessa sívaxandi starfsemi og mikilvægu.

Í 3. tölul. eru tvær breytingar. Þar er fjallað um verkefni á höfuðborgarsvæðinu. Ég ætla að gera fyrst sérstaklega grein fyrir annarri þeirra sem fjallar um Hafnarfjarðarveg og Nesbraut en í gildandi samgönguáætlun er gert ráð fyrir rúmlega 1 milljarði árið 2009 og rúmum 1,6 milljörðum árið 2010 í verkefni sem heitir Kringlumýrarbraut/Miklabraut. Segja má að þar sé fyrst og fremst verið að ræða um gatnamótin á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem allmikið hefur verið rætt um, ekki síst á vettvangi Reykjavíkurborgar. Um það hafa auðvitað verið allskiptar skoðanir. En það er rétt að geta þess að ráðist var í heilmiklar endurbætur á þeim gatnamótum fyrir fáum árum sem hafa reynst mjög vel. Þær hafa liðkað og greitt mjög fyrir umferð á þessum þungu gatnamótum og stórlega dregið úr umferðarslysum á svæðinu.

Það er mitt mat að þær aðgerðir hafi og eigi að fá að sanna sig áfram en hins vegar sé mikilvægt að ráðast í umbætur ekki síst til þess að tengja saman hverfin beggja megin Miklubrautar, þ.e. Hlíðahverfið beggja megin Miklubrautar, þannig að úr verði eitt hverfi. En þessi mikla umferðaræð sem Miklubraut er í gegnum þétt íbúðahverfi og mjög nálægt íbúðabyggðinni sker þetta hverfi í sundur eins og stórfljót. Það hefur líka verið uppi áhersla af hálfu borgarinnar að ráðist yrði í úrbætur á þeim kafla og hugmynd mín með tillögunni er að flytja þetta verkefni til. Þar er ekki um að ræða nein viðbótarútgjöld í sjálfu sér heldur einungis að verkefnið sem er eyrnamerkt Kringlumýrarbraut/Miklabraut færist yfir á verkefnið Nesbraut/Kringlumýrarbraut/Snorrabraut, þ.e. á kaflanum milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar verði þetta fjármagn veitt í úrbætur. Ég ætla að geyma aðeins hinn hlutann í þessum tölulið og taka hann ásamt öðrum í heild á eftir.

Í 4. tölul. eru tillögur að breytingum um verkefni á landsbyggðinni. Þar eru reyndar tveir nýir liðir sem ég er með breytingartillögur við og ætla að nefna í fyrsta lagi verkefnið Súðavík/Bolungarvík eða Súðavíkurhlíð. Þar er ég með tillögu um að setja sérstaka fjárveitingu til úrbóta á veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur og undirbúnings vegganga þar. Gert er ráð fyrir 30 millj. kr. viðbótarframlagi árið 2008 og 50 millj. kr. framlagi árið 2009 til undirbúnings verkefninu en í gildandi samgönguáætlun eru 20 millj. kr. árið 2008 og 20 millj. kr. árið 2009 í þann vegkafla.

Það er skoðun mín að mjög brýnt sé að ráðast í að skoða þennan vegkafla sérstaklega. Þetta er hættulegur vegur. Þarna hafa orðið vond slys og hugmynd mín er sú að lagt verði fjármagn í að undirbúa endurbætur og veggöng á þeim kafla og fjármagnið verði veitt til undirbúnings og rannsókna í því efni.

Í 5. tölul. get ég í raun og veru tekið saman fyrri hlutann í 3. tölul., þar sem fjallað er um Hafravatnsveg/Vesturlandsveg og Kjalarnes/Borgarnes, fyrri hlutann í 4. lið, þar sem fjallað er um hringveginn á Suðurlandi norðan Selfoss að Hafravatnsvegi, og síðan 5. og 6. tölul. en það sem þeir eiga sammerkt er að þar er ekki um að ræða nýjar fjárhæðir í samgönguáætlunina, þessar fjárhæðir eru allar í 6. lið eins og menn sjá þar. Þar koma þær fyrir sem mínustölur en koma inn sem plústölur á þá liði sem þar greinir.

Hugsun mín er sem sagt sú að þær fjárhæðir sem í gildandi samgönguáætlun eru merktar undir liðnum Sérstök fjármögnun falli niður og fari í staðinn á viðeigandi stað í samgönguáætluninni undir hefðbundnum lið, þ.e. undir hefðbundinni fjármögnun.

Í samgönguáætluninni er gert ráð fyrir að þær framkvæmdir sem þarna er um að ræða, þ.e. Vaðlaheiðargöngin, hringvegurinn norðan Selfoss, eða á milli Hafravatnsvegar og Selfoss, og hringvegurinn frá Kjalarnesi í Borgarnes, verði fjármagnaðar í svokallaðri einkaframkvæmd. Í Vaðlaheiðargöngum er gert ráð fyrir notendagjöldum að 50%. Ég er ekki með hugmynd um að breyta þeirri forsendu en ég geri tillögu um að sú fjárhæð sem ella hefði lent sem einkaframkvæmd fari inn í hina hefðbundnu samgönguáætlun. Hið sama á við um hringveginn sem sagt út frá höfuðborgarsvæðinu frá Hafravatnsvegi að Selfossi annars vegar og frá Hafravatnsvegi og um Kjalarnes og í Borgarnes.

Þar er um að ræða tilfærslur innan áætlunarinnar en að öðru leyti held ég að þessar breytingartillögur skýri sig nokkuð sjálfar. Ég geri ráð fyrir því að þessar tillögur komi þá til atkvæðagreiðslu við 2. umr. og ég vonast til að geta fengið stuðning við þær.