viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007–2010.
Frú forseti. Ég biðst forláts á því við hv. þm. Kristin H. Gunnarsson að mér láðist að svara seinni hluta spurningar hans varðandi nefndarálitið. Í tengslum við þennan viðauka í umræðum í samgöngunefnd kom fram mikill og samhljóða áhugi frá fulltrúum allra flokka og vilji til þess að efla enn frekar rannsóknir á jarðgangagerð á Íslandi en verið hefur. Það er í því ljósi sem þessi setning er sett þarna inn í nefndarálitið. Það má líta á þetta sem viljayfirlýsingu nefndarinnar til ráðuneytisins um að þetta verði skoðað enn frekar. Ég held að allir hljóti að vera sammála um að við horfum upp á það núna, ekki bara í dreifbýlinu heldur einnig í þéttbýlinu, að kröfur aukast sífellt, t.d. umhverfiskröfur varðandi vegagerð sem geta leitt til þess að menn fari að skoða frekar jarðgöng, ekki síst hérna á höfuðborgarsvæðinu. Af því að það var talað hér um Kringlumýrarbraut/Miklubraut gæti komið til skoðunar að setja jarðgöng eða stokk á því svæði þannig að þetta er fyrst og fremst viljayfirlýsing nefndarinnar til samgönguráðherra. Ef samgönguráðherra hefur það djúpa vasa í ráðuneyti sínu að hann geti sett einhverja fjármuni í þetta verkefni er það auðvitað vel. En við erum að kalla eftir því að þetta verði aukið og að í þetta verði settir einhverjir fjármunir þó að það þurfi ekki að hlaupa á tugum milljóna króna.