135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

heimild ríkissjóðs Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008.

640. mál
[14:58]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við í Frjálslynda flokknum styðjum þetta mál og teljum að verið sé að styrkja stöðu Íslands, bæði innan lands og út á við, og þetta verði væntanlega þjóðinni til góðs með lækkandi verðbólgu og betri kjörum í framtíðinni.