135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[15:03]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Á þskj. 1121 eru allnokkrar breytingartillögur með viðauka við fjögurra ára samgönguáætlun. Ég óska eftir því að kalla aftur 2. tölulið um almenningssamgöngur í þéttbýli og sömuleiðis síðari hluta 3. töluliðar sem fjallar um Hafnarfjarðarveg og Nesbraut.