viðbrögð ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Þann 24. október 2007 tók mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna afstöðu til máls sem tveir íslenskir sjómenn höfðu beint til nefndarinnar vegna þess að þeir töldu sig vera órétti beitta og nytu ekki borgaralegra réttinda á við þá sem fá fiskveiðiheimildir afhentar sér að kostnaðarlausu.
Álit nefndarinnar var birt ríkisstjórninni þann 12. desember 2007 en hún kynnti það ekki. Strax og okkur þingmönnum Frjálslynda flokksins var kunnugt um álit mannréttindanefndarinnar í janúar sl. ákváðum við að knýja fram að Alþingi ályktaði um að hlíta bæri niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Við þingmenn Frjálslynda flokksins ásamt þingmönnum Vinstri grænna lögðum fram þingsályktunartillögu í janúar sl. þess efnis að Alþingi bæri að hlíta áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Sú þingsályktunartillaga fékkst þó rædd á Alþingi í apríl og var hún þá send sjávarútvegsnefnd Alþingis. Hún hefur ekki fengist afgreidd aftur úr nefndinni þar sem Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru með meiri hluta.
Í umræðu um þingsályktunartillögu okkar um að farið skyldi að áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og að við Íslendingar hættum að brjóta mannréttindi á borgurum okkar kom fram að þingmenn allra flokka á Alþingi, að Sjálfstæðisflokknum einum undanskildum, lýstu yfir stuðningi við þingsályktunartillöguna. Þessir þingmenn kröfðust þess ásamt okkur frjálslyndum að farið yrði að lögum og fiskveiðistjórnarkerfinu breytt með þeim hætti að gætt yrði sanngirni, atvinnufrelsis og jafnræðis borgaranna. Það er sorglegt að á því herrans ári 2008 skuli þurfa að krefjast þess að Alþingi Íslendinga fari að lögum og ákvæðum alþjóðasamninga sem íslenska ríkið hefur staðfest um mannréttindi. Er Sjálfstæðisflokknum ekkert heilagt í forstokkaðri varðstöðu sinni um óréttlátt kvótakerfi?
Við umræðuna komu fram þau sjónarmið hjá nokkrum þingmönnum Samfylkingarinnar að ekki þyrfti að vandræðast með þetta mál eða álykta um það þar sem hæstv. sjávarútvegsráðherra mundi móta tillögur um breytingar á kvótakerfinu í samræmi við niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það ítrekaði hv. þm. Karl V. Matthíasson, varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, hvað eftir annað við umræðuna. Frá því að þingsályktunartillaga okkar var rædd á Alþingi hefur ítrekað verið spurt til hvaða aðgerða ríkisstjórnin ætli að grípa til að breyta kvótabraskskerfinu og tryggja að stjórnkerfi fiskveiða fullnægði ákvæðum laga um mannréttindi. Við og fleiri höfum farið fram á að málið yrði lagt fyrir Alþingi en það hefur ekki verið gert þrátt fyrir margítrekaðar áskoranir og kröfur. Síðast í gærdag var látið í veðri vaka að eitthvað yrði gert og ríkisstjórnin mundi bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Nú er síðasti starfsdagur Alþingis á þessu vori samkvæmt því sem ákveðið hefur verið af hæstv. forseta og enn bólar ekki á neinum tillögum, engum. Ég hlýt að spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra til hvaða aðgerða hann ætlar að grípa til að verða við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í því skyni að réttarríkið Ísland hætti að brjóta mannréttindi á borgurum sínum. Því má ekki gleyma að mannréttindi eru heilög. Þau eru algild. Um þau verður ekki samið og má ekki semja. Þess vegna kröfðumst við frjálslyndir þess að málið fengi þinglega meðferð. Í ljós kom eins og ég hef áður rakið að meiri hluti þingmanna á Alþingi styður að farið skuli að áliti mannréttindanefndarinnar. Samt fæst málið ekki tekið fyrir. Þingviljinn fær ekki að koma fram vegna ofríkis ríkisstjórnarflokkanna. Samfylkingin hélt fund úti í bæ til að leggja áherslu á að farið yrði að áliti mannréttindanefndar. Hér á Alþingi heyrist hins vegar lítið í þingmönnum eða ráðherrum Samfylkingarinnar í þessu máli. Þeir verða heimóttarlegir og sneyptir þegar við minnum þá á að forusta Samfylkingarinnar kallaði gjafakvótakerfið mesta rán Íslandssögunnar.
Ég spyr, virðulegi forseti: Getum við eða megum við semja um að þeir sem hafa fengið til sín einokunarkvótann fái að halda honum? Þeir sem það samþykkja eru þá sjálfkrafa að leggja blessun sína yfir mesta óréttlæti Íslandssögunnar með Sjálfstæðisflokknum. Ætlar Samfylkingin virkilega að standa að þeirri málsmeðferð? Hvar eru nú loforðin og stéttarvitundin og öll glamuryrðin sem Samfylkingin viðhefur á tyllidögum í aðdraganda alþingiskosninga?
Ég spyr: Er þess að vænta að í fyrirhuguðu svari sjávarútvegsráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar verði mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna svarað á þann veg að farið verði að álitinu? Þetta verði gert með grundvallarbreytingum á kvótabraskskerfinu sem ég kalla ævinlega svo, kerfi sem nú gerir sjómenn og íbúa sjávarbyggðanna að leiguliðum fyrir þá fáu sem fara einir með mestallan rétt á óveiddum fiski í sjónum, sameiginlegri auðlind okkar Íslendinga?