135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

grunnskólar.

285. mál
[19:01]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þingmönnum, þeim Kolbrúnu Halldórsdóttur og Höskuldi Þórhallssyni, varðandi mannréttindaákvæði í frumvarpi til laga um grunnskóla. Ég tel að það sé þýðingarmikið að koma því inn og lýsi, eins og varðandi leikskólann, undrun minni yfir því að þingmenn stjórnarinnar, og þá sérstaklega Samfylkingarinnar, skuli ekki ljá máls á því að hnykkja á þessum þætti í lögunum. Það veldur mér satt að segja mjög mikilli furðu, svo að ekki sé meira sagt, að það skuli ekki vera vilji til þess.

En ég kom hér aðallega til þess að gera grein fyrir breytingartillögu við frumvarpið sem ég flyt ásamt þingmönnunum Steingrími J. Sigfússyni og Álfheiði Ingadóttur og birt er á þingskjali 1213. Þar er lagt til að við 1. mgr. 29. gr. bætist þrír nýir málsliðir. 29. gr. frumvarpsins fjallar um skólanámskrá og starfsáætlun undir 7. kafla um inntak náms, námsskipan, námsframboð, námsmat og starfstíma. Þeir hljóði þannig, með leyfi forseta:

„Í námskrá og starfi grunnskóla skal enn fremur tekið mið af aukinni fjölbreytni hvað varðar menningarlegan og trúarlegan bakgrunn nemenda. Hvers kyns trúarleg innræting er óheimil. Fræðsla um trúarlega arfleifð íslenskrar menningar og um mismunandi trúarbrögð skal virða rétt manna til trúfrelsis og trúleysis með það að markmiði að auka þekkingu, umburðarlyndi, skilning og virðingu milli ólíkra trúar- og menningarheima.“