rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu o.fl.
Frú forseti. Hér er á ferð mál sem lætur býsna lítið yfir sér við fyrstu sýn og ég hygg að það hafi ekki margir fylgst með 1. umræðu þess. Ég gerði þar mjög veigamiklar athugasemdir við þetta frumvarp, aðallega að hér er verið að framselja vald sem ég tel að eigi að vera í höndum ráðherra og stjórnvalda, til stjórnsýslustofnunar sem er Orkustofnun í þessu tilfelli.
Fyrstu umræðu bar upp á dagana í kjölfar Helguvíkurúrskurðarins, þegar hæstv. umhverfisráðherra barmaði sér mikið yfir því að hafa engin stjórntæki og geta ekkert gert til þess að stöðva álversframkvæmdir í Helguvík eða styrkja stöðu náttúrunnar á því svæði og í því ferli. Hér aftur á móti er ráðherra iðnaðarmála, hæstv. ráðherra Össur Skarphéðinsson, að afsala sér valdi til úthlutunar á leyfum til rannsókna og nýtingar á auðlindum bæði í jörðu og á hafsbotni.
Mér varð nú að orði við 1. umr. að hér væri Samfylkingunni rétt lýst. Með þessu móti er nefnilega verið að opna leið til þess að hlaupast undan pólitískri ábyrgð á verkum sem hafa orðið mjög umdeild á undanförnum missirum og árum.
Tilgangurinn er sagður einföldun á allri stjórnsýslu í kjölfar aðgerðaráætlunarinnar um Einfaldara Ísland frá 2006. Og enn fremur er vísað í skýrslu og tillögur auðlindanefndar þar sem gerð var tillaga meðal annarra atriða um að Orkustofnun annaðist veitingu leyfa á þessum grunni. Það er til þess vitnað í greinargerð að þetta skapi hagræði í stjórnsýslunni og að þetta framsal einfaldi umsagnarferli og geti slíkt verklag aukið málshraða við umsagnarferli samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Ég leyfði mér að gagnrýna þetta við 1. umr. málsins og ég vitna til þess í nefndaráliti sem liggur fyrir í málinu á þskj. 1202, herra forseti, að frumvarpið sem hér er flutt, m.a. með tilvísun í skýrslu auðlindanefndar, það takmarkar ekki leyfisveitingarvald Orkustofnunar með sama hætti og tillögur auðlindanefndar gerðu og það takmarkar heldur ekki leyfisveitingarvald Orkustofnunar í þessu tilliti á nokkurn viðlíka hátt og gert var í tveimur frumvörpum um sama efni sem hafa verið lögð fyrir þingið, annars vegar á 131. þingi af hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra Valgerði Sverrisdóttur og aftur á 133. löggjafarþingi af þáverandi hæstv. iðnaðarráðherra Jóni Sigurðssyni.
Síðara frumvarpið sem Jón Sigurðsson flutti hér byggði að stórum hluta á tillögum auðlindanefndar og þar var m.a. gert ráð fyrir því að Orkustofnun bæri við útgáfu leyfa sem þessara að afla umsagna frá tilgreindum aðilum. Í skýrslu auðlindanefndar er í rauninni skrifað niður hvernig fara megi með úthlutun gæða sem þessara og ekki síst hvernig megi velja á milli aðila þegar fleiri en einn eru um hituna. Í þessu frumvarpi er ekkert þessu líkt á borðum. Og ég leyfi mér að gagnrýna að þetta mál sem kennt er við Einfaldara Ísland getur hæglega orðið til þess að skaða enn frekar en orðið er hugmyndina um Fagra Ísland sem Samfylkingin hefur kynnt til sögunnar.
Núgildandi lög sem varða leyfisveitingar til rannsókna og nýtingar á auðlindum eru um margt mjög ófullkomin. Það er stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að rannsóknir á náttúruauðlindum lands og sjávar, sem hér er um að ræða, rétt eins og verndun þeirra og áætlanir um nýtingu, eigi að vera á forræði umhverfisráðuneytisins en ekki hjá nýtingarráðuneytinu, sem hér er iðnaðarráðuneytið. Ég leyfi mér í þessu áliti að gagnrýna það sérstaklega að Orkustofnun, sem ekki ber neina pólitíska ábyrgð, geti haft frumkvæði að og veitt leyfi til rannsókna og nýtingar auðlinda án þess að um leið séu settar skýrar reglur um meðferð umsókna og úthlutun leyfa.
Ég minni á þær miklu deilur sem staðið hafa á undanförnum missirum og árum um úthlutun leyfa til rannsókna á viðkvæmum jarðhitasvæðum vegna þess að fyrstu rannsóknir, sýnataka og tilraunaboranir geta eyðilagt stórlega ásýnd og náttúru slíkra svæða. Í ljósi þess að stefnumörkun um auðlindanýtingu er í verkahring stjórnvalda, þ.e. ríkisstjórnar á ábyrgð ráðherra á hverjum tíma, þá hlýtur úthlutun leyfa til rannsókna og nýtingar auðlinda að vera pólitísk ákvörðun, að minnsta kosti að hluta, og hún hlýtur þar af leiðandi að eiga heima á borði ráðherra sem fari með vald sitt samkvæmt stefnumörkun sem reyndar er nauðsynlegt að fái umfjöllun og samþykki Alþingis Íslendinga.
Ég vitnaði til þess í niðurlagi nefndarálits míns að ríkisstjórnin hefur gefið út þá yfirlýsingu að ekki verði gefin út ný rannsóknarleyfi á óröskuðum svæðum meðan vinnu við 2. áfanga rammaáætlunar er ekki verið lokið. Þetta segir manni að það hlýtur að gefast svigrúm til að vanda betur til verka en hér er gert og setja í rauninni ramma um það hvernig eigi að standa að útgáfu þessara leyfa.
Það er ástæða til þess, frú forseti, að benda á leiðara Morgunblaðsins frá 22. og 23. maí, þar sem annars vegar er fjallað um nýtingu auðlinda og hins vegar um eftirspurn og framboð á raforku. Í báðum þessum leiðurum er kallað eftir því að stjórnmálamenn og þingmenn taki í taumana og geri að minnsta kosti tilraun til að öðlast heildarsýn á stöðu okkar og hagsmuni í orkumálum.
Morgunblaðið leggur áherslu á að sú skoðun eigi að fara fram á grunni lýðræðislegra vinnubragða, m.a. með aðkomu stjórnarandstöðunnar. Ég tek undir þessa hvatningu leiðarahöfundar Morgunblaðsins og í niðurlagi þessa álits kemur fram að ég og minn flokkur, vinstri græn, við leggjumst gegn samþykkt þessa frumvarps. Við teljum ekki að það sé nógu vandað. Við teljum að það beri hættu með sér á því að ábyrgðinni á leyfisveitingunni sem er gríðarlega mikilvægt mál, sé tekin af borði hins pólitíska valds og vísað út í bæ til þess eins að ráðherrarnir geti síðan komið eins og gerðist varðandi Helguvík og sagt: Við höfum engin tæki, við gerum ekkert gert.
Það er miður, frú forseti, að í störfum nefndarinnar var ekki tekið tillit til þeirra ábendinga sem bárust um nákvæmlega þetta efni frá Umhverfisstofnun, frá Náttúrufræðistofnun og frá Náttúruverndarsamtökum Vestfjarða. Í þessum þremur umsögnum til nefndarinnar er vakin athygli á því að það þurfi að skýra betur hvernig eigi að standa að þessari leyfisveitingu. Umhverfisstofnun vekur sérstaka athygli á því að það skortir algerlega allar slíkar leiðbeiningar í lögunum um rannsóknir á eignarrétti íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, og leggur hreinlega til að við 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins verði bætt ákvæði um að það skuli taka tillit til ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum, tillit til laga um náttúruvernd og annarra laga sem við eiga og að leita skuli umsagna Hafrannsóknastofnunarinnar, Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands áður en slík leyfi séu veitt.
Náttúrufræðistofnun Íslands telur nauðsynlegt að styrkja verndarákvæði laga nr. 73/1990 sem eru þessi sömu lög, um rannsóknir á hafsbotninum, og við erum að tala hér um gríðarlega mikilvægt mál. Við erum að tala um efnistöku, námavinnslu á hafsbotni þar sem hvergi í lögunum er tekið tillit til annars en að það skuli gæta að lögum um mat á umhverfisáhrifum. Þar er ekki verið að hugsa um það sem hér er bent á að það þurfi að gæta ákvæða náttúruverndarlaga sem og laga um mat á umhverfisáhrifum.
Frú forseti. Við 1. umr. þessa máls átti ég nokkur orðaskipti við hæstv. iðnaðarráðherra um kærufrestinn sem þá var gert ráð fyrir að væri 30 dagar. Ég fagna því sérstaklega að í meðförum nefndarinnar hefur verið fallist á það sjónarmið að kærufrestir sem þessir eigi að fylgja stjórnsýslulögum. Ég vona einnig að þannig verði það í framtíðinni, að ráðherra sé ekki að koma með skemmri fresti en stjórnsýslulög kveða á um.
En þessi kærufrestur er mikilvægur, ekki aðeins hvað tímalengdina varðar heldur líka hvað varðar hverjir eiga aðild að kæru sem þessari. Og vegna þess, frú forseti, að umræður hér í þingsal hafa nokkurt gildi til lögskýringa þegar lög, greinargerðir og nefndarálit þrýtur þá hefði verið æskilegt að hæstv. iðnaðarráðherra væri í salnum því ég hefði viljað óska eftir því að hann ítrekaði það sem hann þar sagði um að allir, þar á meðal náttúruverndarsamtök og umhverfisverndarsamtök, ættu að geta kært leyfisveitingar sem þessar til ráðherra. Við vitum að það hafa staðið miklar deilur um að þeir sem ekki eiga svokallaðan lögvarinn rétt geti ekki komið athugasemdum sínum á framfæri og eigi ekki aðild að málum. Og það er nöturlegt að við skulum ekki enn þá hafa haft manndóm í okkur, vil ég leyfa mér að segja, til þess að lögleiða allar þrjár stoðir Árósasamningsins sem tryggja ekki aðeins aðgang almennings að upplýsingum heldur þátttöku í ákvarðanatöku og loks aðgang að réttlátari málsmeðferð í umhverfismálum. Það er dapurlegt að þetta skuli ekki enn hafa verið lögfest hér á landi.
En í ljósi þess sem hæstv. iðnaðarráðherra sagði við 1. umr. málsins þá þykir mér einsýnt, ef til þess kemur að frumvarpið verði samþykkt, að þá muni hæstv. ráðherra tryggja það að allir landsmenn og þar á meðal umhverfissamtök geti átt aðild að slíkri kæru. En þá er ekki síður mikilvægt að upplýsingar um slíkar leyfisveitingar liggi á ljósu. Af því tilefni vil ég leyfa mér að rifja upp deilurnar sem urðu hér um rannsóknarleyfi sem gefið var út í Gjástykki tveimur dögum fyrir kosningar síðastliðið vor og ekki nokkur lifandi maður vissi um, utan fyrirtækisins sem fékk það og ráðuneytisins, fyrr en í rauninni löngu eftir að sá mánaðarfrestur sem upphaflega var gerð tillaga um var liðinn. Þannig hefur verið staðið að þessum málum hingað til, frú forseti, og það er miður að einustu breytingarnar sem liggja fyrir varðandi þetta ferli skuli leiða til þess að ráðherra geti varpað frá sér pólitískri ábyrgð á slíkum verkum. Ég legg eindregið til að þetta frumvarp til laga verði fellt og menn fari í að vinna hlutina betur en hér er gert.