135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

almannavarnir.

190. mál
[19:59]
Hlusta

Frsm. minni hluta allshn. (Atli Gíslason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta um frumvarp til laga um almannavarnir. Það er sérkennileg tilfinning að gera það hér í skugga jarðskjálftanna á Suðurlandi. Hugur minn dvelur hjá því fólki sem upplifði náttúruhamfarirnar, ég óska þeim alls hins besta og sendi þeim hugheilar kveðjur.

Ég tek undir það með formanni allsherjarnefndar að þetta er þýðingarmikill málaflokkur sem skiptir máli að vanda afar vel til. Í frumvarpinu er margt til bóta og þær tillögubreytingar sem gerðar voru í nefndinni, sem meiri hlutinn hefur mælt fyrir, eru flestar til bóta ef ekki allar.

Ég verð þó í þessu samhengi, og það varð til þess að ég skilaði séráliti í málinu, að lýsa vonbrigðum yfir því að endurskoðun skuli nú gerð á lögunum, rétt eins og árið 2003, án samráðs við þá aðila sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna á þessu sviði svo sem slökkvilið, Brunamálastofnun og sveitarfélögin.

Veigamikil atriði við smíð frumvarpsins eru enn fremur í andstöðu við þau viðmið sem sett eru í handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa sem gefin var út í nóvember af forsætisráðuneytinu. Það er því miður fremur regla en undantekning að slíkt hendi dómsmálaráðuneytið. Þau vinnubrögð hafa, það kemur skýrt fram í umsögnum, valdið tortryggni hjá þeim sem starfa að almannavörnum, réttmætri gagnrýni og að hluta til óþarfa misskilningi. Það staðfesta ótrúlega margar umsagnir sem bárust nefndinni.

Umtalsverður ágreiningur er um efni frumvarpsins og athugasemdir komu fyrst og fremst frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir þær breytingar sem hafa verið gerðar á frumvarpinu í meðförum allsherjarnefndar standa samtökin við þá gagnrýni sína.

Megingagnrýni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lýtur að því að valdsvið sveitarfélaga, þ.e. heimamanna á nærvettvangi, er skert og miðstýring og valdheimildir ríkislögreglustjóra auknar. Samkvæmt frumvarpinu munu almannavarnir, ef ég má orða það þannig, lúta miðstýrðri lóðréttri stjórnun í stað láréttrar valddreifingarstjórnunar sem gefist hefur vel bæði hér á landi og á Norðurlöndum. Það gekk jafnvel svo langt að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu óskuðu eftir því að sett yrðu upp sérákvæði um almannavarnir hér. Mér er það fyllilega ljóst að samráð og þarfagreining í anda góðrar frumvarpssmíði hefði leyst þennan ágreining og mér finnst það nánast óásættanlegt að afgreiða málið sem lög frá Alþingi í andstöðu við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem gegna lykilhlutverki hér.

Í frumvarpinu gætir tilhneigingar til að spyrða saman borgaralegar öryggisstofnanir samfélagsins og hernaðarlega starfsemi. Í umsögn Samtaka hernaðarandstæðinga er varað við þeirri öfugþróun sem vart hefur orðið við á undanförnum árum, þar sem hefðbundnum æfingum almannavarna og björgunarsveita er blandað saman við heræfingar.

Einnig hefur verið bent á að ósamræmi sé milli ákvæða frumvarpsins og greinargerðarinnar eða athugasemda með því. Ríkislögreglustjóri bendir á að skilgreina hefði þurft hugtök í frumvarpinu og leggur upp í umsögn sinni skilgreiningarkafla og hefði ég talið betur fara á því að taka hann inn.

Ekki verður heldur komist hjá því að gagnrýna það nokkuð harðlega að á meðan kostnaður ríkisins hefur verið skilgreindur og skýrður hefur ekki farið fram kostnaðarmat vegna útgjalda sveitarfélaganna. Það stangast á við samkomulag milli sveitarfélaganna og ríkisins sem undirritað var á árinu 2005.

Minni hlutinn leggur á þessu stigi til ákveðnar lágmarksbreytingar á frumvarpinu sem ég ætla að hlaupa nokkuð hratt yfir. Við leggjum til að orðið „hernaðaraðgerðir“ falli brott úr upptalningu í 1. gr. líkt og gert var með orðið hryðjuverk, það var tekið út í meðförum nefndarinnar. Við leggjum líka til að notast verði við hugtakið almannavarnaráð í stað almannavarna- og öryggisráðs og öryggismálastefnu — að talað verði um almannavarnamál og almannavarnastefnu en ekki almannavarna- og öryggismálastefnu.

Allmargar breytingar í tillögu minni hlutans lúta að því að færa vald nær héraði, nær vettvangi. Þar er m.a. breytingartillaga í 5. gr., 8. gr., 21. gr., 23. gr. og 24. gr. Við leggjum til að 13. gr., um úrlausn ágreiningsefna, falli niður og við leggjum til að 20. gr., um kvaðningu til starfa í almannavörnum, falli niður, það er kannski sérstaklega þegar maður hefur í huga orðið hernaðaraðgerðir í 1. gr. frumvarpsins. Í Vestmannaeyjagosinu og í öðrum áföllum sem dunið hafa yfir hefur komið í ljós að íslensk þjóð sýnir samkennd, mætir á staðinn og hjálpar. Ekki þarf neinar kvaðningar í þeim efnum.

Við leggjum enn fremur til að ákvæði frumvarpsins, um að sveitarfélag endurheimti þann kostnað sem það hefur haft af fæði og húsnæði á slíkum tímum, verði fellt niður. Við teljum eðlilegt að ríkið greiði slíkan kostnað. Það er óeðlilegt að einstaklingar þurfi, eftir að hafa upplifað náttúruhamfarir, að borga til viðbótar kostnað af því.

Við gerum líka ráð fyrir því að í afmörkuðum tilvikum, þegar sveitarfélög standa illa fjárhagslega, taki ríkissjóður þátt í greiðslu kostnaðar vegna skipulags almannavarna og gerð viðbragðsáætlana. Þetta eru lágmarksbreytingar. Tímans vegna gafst ekki færi á að setja fleira fram. En ég vil almennt segja að margt er til bóta í frumvarpinu og breytingartillögur meiri hlutans eru til þess fallnar að gera frumvarpið mun betra en það var þegar það kom frá dómsmálaráðuneytinu.