opinberir háskólar.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. formanni menntamálanefndar fyrir stuðninginn við það að orðinu „starfslið“ í þessu frumvarpi verði breytt í starfsfólk sem er sambærileg breyting við það sem við gerðum á grunnskólafrumvarpi og leikskólafrumvarpi í góðri sátt. Ég vil hins vegar gera grein fyrir atkvæði mínu hér, hæstv. forseti. Þetta er önnur af tveimur afar mikilvægum greinum sem varða æðstu stjórn háskólans og hins opinbera háskóla. Við gerðum breytingartillögu við þetta sem nú hefur verið felld. Í ljósi þess tel ég nauðsynlegt að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um 5. gr. því sú hugmyndafræði sem jafningjastjórnunin byggir á sem við erum að reyna að leggja til að verði innleidd með 5. gr. og 6. gr. hefur verið felld. Í ljósi þess ákvað ég að sitja hjá við 5. gr., hæstv. forseti.