135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

framhaldsskólar.

286. mál
[21:09]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Ég vek athygli á að hér er lögð fram tillaga um að námsgögn í framhaldsskólum verði nemendum að kostnaðarlausu og felld verði niður innritunar- og efnisgjöld í samræmi við kosningayfirlýsingu fjölmargra stjórnmálaflokka fyrir síðustu alþingiskosningar. Ég segi já.