135. löggjafarþing — 114. fundur,  30. maí 2008.

mannréttindabrot og fangabúðir í Guantanamo.

107. mál
[01:44]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Við framsóknarmenn styðjum þessa tillögu heils hugar. Þó að við höfum horft upp á hryðjuverk í heiminum er aldrei hægt að réttlæta mannréttindabrot í baráttunni gegn hryðjuverkum. Við segjum því já.