135. löggjafarþing — 115. fundur,  30. maí 2008.

samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu.

621. mál
[01:59]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd.

Nefndin hefur fjallað um þetta mál og er sammála um afgreiðslu þess.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008. Samningurinn kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2008, gagnkvæma heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2008 auk þess sem hann kveður á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum sem skráð eru í landi hins aðilans leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2008.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.