135. löggjafarþing — 116. fundur,  2. sept. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál.

[15:51]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það eru reyndar tvö ár síðan ég lauk störfum sem viðskiptaráðherra. Það má nú ekki gleymast að ég var í utanríkisráðuneytinu í eitt ár.

Hvað varðar gjaldeyrisvaraforðann þá er náttúrlega ekki hægt að bera saman ástandið í þjóðfélaginu sem var á þeim árum, fyrir tveimur og hálfu ári síðan, og ástandið í dag og þá er ég að tala um hvað bankarnir hafa eflst gríðarlega. Við erum að tala um allt annað hlutverk fyrir Seðlabankann en var þá. Í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, var gjaldeyrisvarasjóðurinn styrktur verulega. En ef stjórnvöld hefðu á þeim tíma gert sér grein fyrir hver þróuninni yrði þá er ég ekki í nokkrum vafa um að það hefði verið gert enn betur. Auðvitað getur maður fullyrt það núna að það hefði átt að gera betur miðað við það sem síðan hefur svo orðið þróunin.

En þegar við erum að tala um gjaldeyrisvaraforða, upp á kannski 1.000 eða jafnvel eins og heyrðist í einum prófessor í Háskóla Íslands að hann þyrfti jafnvel að vera 2.000 milljarðar, þá erum við náttúrlega tala um að við ætlum að halda í krónuna. En það er hins vegar þessi stóra spurning sem við þurfum að velta upp og ræða, þ.e. hvort krónan getur þjónað okkur til framtíðar.

Þetta er eitt af því sem við framsóknarmenn erum að vinna í núna, síðustu vikur og mánuði, og við munum greina frá niðurstöðum í þeirri vinnu á næstunni, hver niðurstaða okkar er í sambandi við framtíð gjaldmiðils okkar eða hvort við eigum aðra möguleika.