skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál.
Frú forseti. Ég vil nú byrja á því að taka fram að mér hafa ekki mislíkað frammíköll þegar ég tala en ég skal alveg viðurkenna að mér fipast oft. En það gerir frammíköllin ekki minna virði.
Ég vil aftur á móti bera það alveg af mér að það sé eitthvert ábyrgðarleysi að fylgjast með fjölmiðlum. Ég hef starfað sem blaðamaður, ekki sem fjármálaráðgjafi, lengst af starfsævi minni og ég hef líka sem blaðamaður haft mikinn áhuga á því að lesa það sem aðrir blaðamenn skrifa og varðandi það að ég hafi vitað fjármálakreppuna fyrir þá hafði ég það vit bara af því að lesa blöð, Economist, Newsweek og síðan íslensku blöðin. Ég er ekki að tala um nokkurs konar forvitrisnáttúru því þótt hún hafi verið þekkt á Suðurlandi á tímum Gunnars Hámundarsonar frænda míns þá er hún nú mjög á undanhaldi.
Það að fyrir dyrum stæðu mjög alvarlegir tímar vegna ofurveðsetningar í hinum kapítalíska vestræna hagkerfi held ég að ekki hafi þurft neina sérstaka spádómsgáfu til að vita. Ég held raunar að stjórnarmeirihlutinn hafi allt frá því að ný stjórn tók við völdum og geri enn, spilað inn á mjög ódýra pólitík um það að þetta sé nú kannski ekki endilega kreppa. Þetta sé kannski ekki endilega svo slæmt.
Við heyrðum hér síðast einn af stjórnarliðum, hv. þm. Pétur H. Blöndal, tala um það að ef til vill væri þetta nú bara allt saman í góðu lagi og ástandið á Íslandi væri aðallega frábært. Málflutningur af þessu tagi ber ekki vott um mikla ábyrgð. Það er ekki mikil ábyrgð í því fólgin að afneita veruleikanum og ég hef litið á að það sé eðlileg verkskylda manna hvort sem þeir vinna við blaðamennsku eða stjórnmál að fylgjast með því sem skrifað er um efnahagsmál.