skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál.
Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs að nýju fyrst og fremst til að taka undir með hv. þingmanni og ítreka að að þessu leytinu erum við sammála. Reyndar eru þetta hugmyndir og tillögur sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð setti fram í sínum efnahagspakka. Við lögðum til og leggjum til og höfum talað fyrir því að lífeyrissjóðirnir verði kallaðir að sameiginlegu borði með stjórnvöldum til þess m.a. að íhuga þann kost á hvern hátt þeir geti orðið til þess að styrkja stöðu okkar, styrkja gjaldmiðilinn en verða jafnframt að gagni við uppbyggingu á innra stoðkerfi samfélagsins. Þetta er að finna í tillögum okkar, þetta er að finna í skrifum okkar á undanförnum vikum og mánuðum.