135. löggjafarþing — 117. fundur,  3. sept. 2008.

samningar við ljósmæður.

[13:42]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Í þeirri samningalotu sem staðið hefur núna að segja má það sem af er þessu ári hefur tekist nokkuð átakalaust að semja við langsamlega flestar stéttir opinberra starfsmanna og reyndar líka á hinum almenna vinnumarkaði. Það eru einungis örfáir hópar sem ekki hefur náðst samkomulag við og hafa talið sig þurfa að leita eftir frekari og betri samningum eða meiri hækkunum en almennt hafa náðst fram í samningum að þessu sinni.

Það er auðvitað svo að ekki eru allar stéttir í sömu stöðu á hverjum tíma og ekki óeðlilegt að það sé eitthvert svigrúm til að taka tillit til einstakra starfsstétta í samningum þó að mest af því svigrúmi sem er mögulegt í þeim efnum sé í stofnanasamningum en ekki í miðlægu samningunum. Það sem hefur einkennt þá samninga sem náðst hafa á síðustu mánuðum er að mínu mati mjög mikill samningsvilji þeirra sem að málinu hafa komið og hugsanlega hefur það líka markast af því ástandi sem við höfum verið að upplifa í efnahagslífi þjóðarinnar, þar hafa verið sviptingar og breytingar að gerast og koma fram, og einnig það að flestir þessir samningar eru til skamms tíma. Samningar sem eru til skamms tíma eru síður til þess fallnir að gera miklar breytingar á kjörum einstakra hópa eins og þeirra sem hér um ræðir og því er þrengra um vik að gera slíkar breytingar nú en þegar um lengri samninga er að ræða. Við vonumst þó til að hægt sé að ná saman áður en til verkfalla eða raunverulegrar hörku kemur og ég bind vonir við að það takist.