135. löggjafarþing — 117. fundur,  3. sept. 2008.

svar frá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.

[13:50]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Það kom fram í máli sjávarútvegsráðherra að hann teldi að þessu erindi hefði verið svarað með fullnægjandi hætti og að eðlileg viðbrögð af hálfu stjórnvalda hefðu verið viðhöfð. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra að því hvenær við eigum þess að vænta hér í hv. Alþingi að inn komi einhverjar tillögur sem gangi í þá átt sem fólst í áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna að því að auka lýðréttindi, jafnræði í því kerfi sem stýrir hér fiskveiðum. Eigum við þess að vænta nú á komandi hausti að eitthvað komi frá ráðuneytinu eða tillögur frá ríkisstjórninni í þeim efnum eða er þess frekar að vænta þegar líður fram yfir áramót á næstkomandi þingi? Eða hvaða verklag hyggst ráðuneytið hafa í framhaldi af því svari sem gefið var?