ljósmæðradeilan og leiðrétting launa kvennastétta.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessi svör sem ég skil þannig að eigi að gefa mjög ákveðið merki og vilyrði um að ríkisstjórnin ætli sér að ganga þessa braut og styrkja stöðu kvenna í þeim stéttum sem orðið hafa undir í launastríðinu á undanförnum árum.
Enda þótt vonandi allir geri sér grein fyrir því að hér stendur karlmaður í pontu fer því fjarri að ég sé áhugalaus um launamál kvenna og jafnrétti á þessum vettvangi. Ég tel þetta vera ólíðandi ástand og að þessar stéttir þurfi á leiðréttingu að halda áður en þessu kjörtímabili er lokið. (Gripið fram í: Nú er tækifærið.) Ég held að miðað við það sem nú hefur komið fram hjá hæstv. fjármálaráðherra í þessu síðasta svari hans sé vissulega (Forseti hringir.) hægt að binda vonir við að úr rætist áður en langt um líður.