135. löggjafarþing — 118. fundur,  4. sept. 2008.

Viðlagatrygging Íslands.

651. mál
[11:39]
Hlusta

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Ræða hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar er svona á svipuðum slóðum og hún var á síðasta vetri þegar við ræddum um setningu síðustu bráðabirgðalaga. Þá tókumst við talsvert á í 2. umr. þess máls hvort brýn nauðsyn hafi verið að setja þau lög með þeim hætti sem þau voru sett. Hv. þingmaður er nú með svipaðan málflutning og þá og sér í rauninni setningu þessara bráðabirgðalaga sem hér eru til umræðu allt til foráttu og gagnrýnir talsvert meðferð ráðherrans á þessari heimild.

Ástæðan að baki þessum bráðabirgðalögum er auðvitað öllum ljós. Hér átti sér stað einn stærsti jarðskjálfti í sögu þjóðarinnar, eitt mesta eignatjón í Íslandssögunni. Að mínu mati kallar það á einhvers konar viðbragð frá löggjafanum og á þessum tíma bráðabirgðalöggjafanum.

En mig langar til að kalla eftir skýrum svörum frá hv. þingmanni þar sem hann er ekki sammála því að ráðherrann hefði átt að setja þessi bráðabirgðalög í sumar eftir þennan stóra jarðskjálfta og hið mikla eignatjón sem þar varð. En hv. þingmaður sá hins vegar ríka ástæðu til þess þegar lögum um lax- og silungsveiði var breytt árið 2003. Þá studdi hv. þingmaður setningu bráðabirgðalaga hér á þingi. Mig langar að fá skýringu frá hv. þingmanni af hverju hann telur frekari réttlætingu fyrir breytingu fyrir þeim bráðabirgðalögum sem ég hlýt að geta fullyrt að hafi verið talsvert lítilfjörlegri en þau bráðabirgðalög sem hér um ræðir. Ég held því að hv. þingmaður skuldi bæði þjóðinni og þingheimi skýringar á muninum á þessum bráðabirgðalögum.