Póst- og fjarskiptastofnun.
Herra forseti. Það er nú stundum þannig hér á hinu háa Alþingi að erfitt er að henda reiður á fundarsköpum og því hvernig menn kjósa að ræða einstök mál. Ég verð að segja það alveg eins og er að ég hélt ekki þræði í ræðu hv. þm. Jóns Bjarnasonar hér áðan. Við ræðum hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun en mér fannst hv. þingmaður fjalla um flest annað en þær breytingartillögur sem nefndin leggur til.
Ég er eiginlega engu nær um fyrirvara vinstri grænna á málinu miðað við ræðu þingmannsins. Það hefur ekki mikla þýðingu fyrir mig að hv. þingmaður kjósi að lesa upp úr gömlum ræðum ráðherra frá síðustu öld og vitna í eitthvað sem einhver sagði fyrir einhverjum árum síðan.
Það er ekki það sem við ræðum um hér í dag heldur nefndarálit með ákveðnum breytingum frá samgöngunefnd sem allir standa að þó að Vinstri hreyfingin – grænt framboð og hv. þm. Árni Þór Sigurðsson kjósi að hafa á því fyrirvara.
Hæstv. forseti. Mér finnst að það væri mun nær að hv. þingmaður beindi spurningum og vangaveltum úr ræðustóli til hæstv. samgönguráðherra hér á vettvangi þingsins eða að fulltrúi hans í samgöngunefnd, hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, tæki þær upp þar og óskaði eftir að ráðherra kæmi á fund nefndarinnar. Það er sjálfsagt. Búið er að heimila að nefndir geti haldið opna nefndarfundi og kallað á ráðherra til skrafs og ráðagerða.
Ég verð hins vegar að segja það alveg eins og er, hv. þm. Jón Bjarnason, að ég held að samgöngunefnd ætti að ræða stærri og viðameiri mál við hæstv. samgönguráðherra en þetta sem við fjöllum um hér í dag.
Án þess að ég ætli að lengja umræðuna eða fjalla efnislega um þau atriði sem hv. þingmaður kom inn á fannst mér ýmislegt að í máli hans. Ég ætla að taka fyrir eitt atriði en hann orðaði það svo að úrskurðarnefndin tæki bara á málefnum fyrirtækja. Það er ekki þannig. Í þessu frumvarpi er sérstaklega gert ráð fyrir því að hagsmunir einstaklinga og annarra lögaðila séu tryggðir gagnvart nefndinni að því leyti að þeir þurfa ekki að greiða málskostnað skjóti þeir málum sínum eða úrskurðum til nefndarinnar. Það þurfa stóru fjarskiptafyrirtækin hins vegar að gera og á því er grundvallarmunur. Hvort sem menn eru að ræða um þessa úrskurðarnefnd eða aðra má ekki gleyma því að hugmyndafræðin á bak við úrskurðarnefndir er einmitt að einstaklingar geti skotið málum sínum beint til þeirra en þurfi ekki að fara með þau fyrir dómstóla.
Hæstv. forseti. Ef mig misminnir ekki var það hv. fyrrverandi þingmaður — nú man ég ekki hvort það var Vinstri grænna en alla vega þingmaður Alþýðubandalagsins — Hjörleifur Guttormsson sem beitti sér mjög fyrir því að þessar úrskurðarnefndir væru settar á laggirnar með hagsmuni „litla mannsins“ að leiðarljósi. Ég held að sú hugsun hafi verið mjög góð á sínum tíma. Síðan er spurning hvort nefndirnar þjóni tilgangi sínum í dag en það er önnur saga. Ég áttaði mig því ekki alveg á því hvað hv. þingmaður átti við með umfjöllun sinni um úrskurðarnefndirnar.
Ég fagna áhuga hv. þingmanns á þessum breytingartillögum nefndarinnar. Eins og ég gerði grein fyrir áðan eru þær svo sem ekki viðamiklar en þó í fjórum liðum. Ég hlýt að endurtaka það sem ég sagði hér í upphafi, ég held að þingmaðurinn fengi svör við þessum spurningum um póstþjónustu almennt á landinu og það væri miklu áhrifaríkara ef hann beindi fyrirspurn sinni til hæstv. ráðherra. Hann talar hér um mál sem voru til umfjöllunar löngu áður en ég settist á þing og því miklu nær að hann ræði það við hæstv. ráðherra en mig sem formann samgöngunefndar.