135. löggjafarþing — 118. fundur,  4. sept. 2008.

Póst- og fjarskiptastofnun.

522. mál
[17:16]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður formaður samgöngunefndar Steinunn Valdís Óskarsdóttir virðist ekki skilja þá fyrirvara sem hér eru settir. Ég get ítrekað það. Markaðsvæðing eða einkavæðing á póstþjónustunni er vinstri grænum ekki að skapi og lög um markaðsvæðingu póstþjónustu voru ekki sett með samþykki vinstri grænna. Við viljum að póstþjónustan sé hluti af almannaþjónustunni, grunnþjónustunni sem allir eiga jafnan rétt til, en ekki markaðsvædd.

Lendir hin markaðsvædda þjónusta í vandræðum með það að úrskurðarnefndin er skipuð af ráðherra eða Hæstarétti? Jú, auðvitað er þetta vandamál hinnar markaðsvæddu þjónustu en við sjáum ekki að það sé í sjálfu sér meginmálið. Það má vel vera að innan þess ramma og vandræðagangs sem er í kringum markaðsvædda þjónustu geti þetta verið betra eða verra. Helst vildi ég hafa stjórnlagadómstól þannig að ég set spurningarmerki við allar úrskurðarnefndir, ekki þessar sérstaklega heldur almennt við úrskurðarnefndir. Ég veit ekki hvað þær eru margar, kannski tugir sem eru starfandi. Ég hef ekki séð að þær séu neitt skilvirkari við að verja rétt og hag almennings.

Ábyrgðin er klárlega hjá samgönguráðherra. Sama hversu margar úrskurðarnefndir eru milliliðir þjónustu almennings vítt og breitt um landið og ráðherrans skiptir það ekki meginmáli. Ábyrgðin er ráðherrans.

Hvort nefndin er skipuð af Hæstarétti eða úrskurðarnefndinni eða ráðherra er í sjálfu sér — um það getum við svo sem haft skoðanir en það ekki aðalatriði hvað varðar rétt almennings í landinu til póstþjónustu.

Þess vegna er það meginmál okkar þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að hér sé rekin öflug og góð póstþjónusta á jafnréttisgrunni um allt land og þjóðin sé ekki flokkuð niður í fyrsta, annars og þriðja stigs fólk hvað varðar póstþjónustu.

Eins og hefur komið fram í fyrirvaranum tökum við í sjálfu sér ekki afstöðu til þess hvort ráðherra eða Hæstiréttur á að skipa úrskurðarnefndir vegna þess að það á ekki að markaðsvæða póstþjónustuna. Um það snýst málið. (Gripið fram í.)Hún á að vera fyrir íbúa hinna dreifðu byggða og þéttbýlis, það er líka verið að skera niður þjónustuna hér. Það er orðið býsna langt fyrir eldra fólk að komast á pósthús og hvar eru frímerkjaafgreiðslur? (Gripið fram í.) Ég þarf að bara vera samgönguráðherra úr því að við tökum til greina frammíkall hv. þm. Ólafar Nordal og það held ég að væri frekar lausn á málinu. Ríkisstjórnin og samgönguráðherra bera ábyrgð á að hér sé öflug póstþjónusta á jafnréttisgrunni og það er verið að ganga á hana.