135. löggjafarþing — 119. fundur, 9. sept. 2008.
Varamenn taka þingsæti.
Eins og forseti hefur tilkynnt á vef þingsins tóku sæti á Alþingi í gær, mánudaginn 8. september, Guðmundur Steingrímsson blaðamaður og Samúel Örn Erlingsson íþróttastjóri sem varamenn Árna Páls Árnasonar og Sivjar Friðleifsdóttur en þau eru erlendis í opinberum erindagerðum. Guðmundur Steingrímsson og Samúel Örn Erlingsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa á ný.