135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

virkjun Jökulsár á Fjöllum.

[13:33]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Í umræðum utan dagskrár um stefnu ríkisstjórnarinnar í virkjana- og stóriðjumálum á miðvikudag fórust mér svo orð, með leyfi forseta:

„Er það kannski þannig að menn renni enn hýru auga til hluta vatnanna sem falla til Jökulsár á Fjöllum? Er það þess vegna sem stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er ekki barn í brók, að það vantar kaflann frá jöklum og niður að þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum? Af hverju er Jökulsá á Fjöllum með Kreppu og Kverká ekki með? Er það kannski vegna þess að menn renna enn hýru auga til þess að veiða þaðan vatn?“

Þetta kallaði hæstv. iðnaðarráðherra í svari „einhverja hugaróra míns eigin sjálfs“ og sagði svo:

„Hv. þingmaður kom hér t.d. og velti því upp að þessi ríkisstjórn hefði áform um að virkja Jökulsá á Fjöllum.“

Eins og heyra mátti í tilvitnun í ræðu mína hér á undan sagði ég ekkert slíkt en spurði hvort það væri enn svo að einhverjir hefðu virkjunaráform uppi.

Nú liggur það fyrir, ef farið er inn á heimasíðu Landsvirkjunar, að þar eru gögn um úthlutun Landsvirkjunar úr Orkusjóði til virkjanarannsókna og þar er m.a. styrkt í ár, og gott ef ekki undangengin ár, verkefni sem heitir því fróma nafni Jökulsá á Fjöllum. Hófleg nýting til orkuframleiðslu. Í þetta fara 1.400 þús. kr. og verkefnisstjóri er Birgir Jónsson hjá verkfræðideild Háskóla Íslands.

Spurningin er: Hverju sætir að Landsvirkjun, opinbert fyrirtæki í 100% eigu ríkisins, veitir fé til virkjana sem ganga þvert á vilja Alþingis, samanber nefndarálit með afgreiðslu frumvarps um Vatnajökulsþjóðgarð og væntanlega einnig þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar? Telur hæstv. iðnaðarráðherra þetta sem sagt vera „hugaróra míns eigin sjálfs“ eða horfist hann í augu við þá staðreynd að Landsvirkjun er þarna, eins og alls staðar annars staðar þar sem hún eygir einhverja orkuvon, að reyna að læsa klónum í? Vill ekki hæstv. ráðherra tala við kollega sinn fjármálaráðherra og biðja hann að senda Landsvirkjun eitt lítið lettersbréf og segja henni að hætta þessu.