sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Svíar eru á eftir ef eitthvað er, þeir eru á eftir í því að einkavæða heilsugæsluna og aðra heilbrigðisþjónustu miðað við það sem hv. þingmaður sagði hér rétt áðan.
Það er enginn að draga DRG-greininguna í efa sem slíka til þess að meta kostnað við heilbrigðisþjónustu. Það er hins vegar spurning hvernig þessi greining er notuð, í hversu miklum mæli, hvernig hún er fléttuð inn, hvort alfarið er greitt samkvæmt DRG-greiningu. Svíar fóru fram með hana í offorsi og þar æddi kostnaðarliðurinn upp af því að þetta er framleiðsluhvetjandi kerfi. Það er það.
Ekki er hægt að nota þetta DRG-kerfi nema við mjög takmarkaðar aðstæður, þ.e. á sjúkrahúsum þar sem hægt er að tala um þjónustuna sem framleiðslu. Hún á alls ekki við um þjónustu í dreifbýli, á minni sjúkrahúsum og þar sem aðstæður eru eins og hér, og er Landspítalinn þar með talinn eftir því sem Birgir Jakobsson sagði. Hv. þingmaður má svara þessu.