135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[15:01]
Hlusta

Frsm. meiri hluta heilbrn. (Ásta Möller) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég notaði orðið hik vísvitandi þar sem það lýsir Framsóknarflokknum í þessu máli einmitt nokkuð vel. En ég bendi jafnframt á heilbrigðisþjónustulögin sem voru samþykkt á síðasta ári og voru unnin að undirlagi framsóknarráðherra, hv. þáverandi þingmanns og hæstv. ráðherra Jóns Kristjánssonar, og síðan Sivjar Friðleifsdóttur. Það var lögð töluvert mikil vinna í að koma þessu frumvarpi í gegn í samstöðu og það var samstaða meðal allra flokka að koma þessu frumvarpi í gegn. Þar var ákvæði um kaup á heilbrigðisþjónustu þannig að það var enginn ágreiningur frá hendi framsóknarráðherranna eða Framsóknarflokksins að fara þessa leið, að fara kaupenda- og seljendaleiðina.

Þess vegna undra ég mig hér enn og aftur á hiki Framsóknarflokksins í málinu vegna þess að mér fannst hann bara hafa staðið sig nokkuð vel (Forseti hringir.) í því að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd þótt hann hafi ekki náð því að fylgja þeim til endaloka.