135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[16:51]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Maður fer að skilja af hverju ekki er samið við ljósmæður.

Á fund heilbrigðisnefndar kom fulltrúi frá, held ég, Samkeppniseftirliti og sagði að það væri alveg hreint óþolandi að menn gætu rottað sig svona saman í einhverjum fagfélögum eða stéttarfélögum. Er þetta skoðun hv. þingmanns, varaformanns Samfylkingarinnar? Ég spurði um alveg konkret dæmi og svarið kom: Það á ekki að semja við Ljósmæðrafélag Íslands um að sinna heimaþjónustu við sængurkonur.

Ég verð að segja alveg eins og er, herra forseti, að manni blöskrar. Það er greinilegt að Samfylkingin hefur með stuðningi við þetta frumvarp látið kreddukenningar frjálshyggjumanna í samstarfsflokknum, Sjálfstæðisflokknum, um að markaðslausnir eigi alltaf við, leiða sig út af braut jafnaðarstefnunnar. Það er kannski ekkert nýtt en það er staðfest hér enn og aftur.